1. gr.
1. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar orðast svo:
Leyfilegur heildarafli í eftirfarandi tegundum, á tímabilinu frá og með 1. september 2015 til og með 31. ágúst 2016, er sem hér segir:
Lestir | Skv. 3. mgr. 8. gr. laga nr. 116/2006 (5,3%) | Til úthlutunar á grundvelli aflahlutdeildar | Veiðitímabil | |
1. Hörpudiskur | 0 | |||
2. Innfjarðarækja: | 950 | |||
Innfjarðarækja skiptist: | ||||
Arnarfjörður | 250 | 13,25 | 236,75 | |
Breiðafjörður, norðurfirðir | 0 | |||
Eldeyjarsvæði | 0 | |||
Húnaflói | 0 | |||
Ísafjarðardjúp | 700 | 37,1 | 662,9 | |
Skagafjörður | 0 | |||
Skjálfandaflói | 0 | |||
Öxarfjörður | 0 |
2. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, lögum nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar, lögum nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands og lögum nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 18. nóvember 2015.
F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,
Jóhann Guðmundsson.
Baldur P. Erlingsson.