Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

959/2015

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 770/2006 um veiðar á íslenskri sumargotssíld. - Brottfallin

1. gr.

Ákvæði til bráðabirgða verður svohljóðandi:

Þrátt fyrir bann við síldveiðum með flotvörpu skv. 1. tl. 2. gr. eru veiðar á íslenskri sumargotssíld heimilar í friðunarhólfi vestur af landinu, skv. 1. tl. 1. gr. reglugerðar nr. 310/2007, um friðunarsvæði við Ísland, á milli 63° 35'N og 65° N.

Ákvæði þetta gildir til og með 11. desember 2015.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 27.október 2015.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Jóhann Guðmundsson.

Baldur P. Erlingsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica