1. gr.
3. gr. reglugerðarinnar orðist svo: Skylt er að ráðstafa a.m.k. 50% af makrílafla einstakra skipa á árinu til vinnslu. Fiskistofa skal fylgjast með að skilyrði vinnuskyldu séu uppfyllt.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, lögum nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum og lögum nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 21. ágúst 2015.
F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,
Jóhann Guðmundsson.
Erna Jónsdóttir.