1. gr.
Frá og með 1. september 2015, má við línuveiðar dagróðrabáta með línu, sem beitt er í landi, landa 20% umfram þann afla í þorski, ýsu og steinbít sem reiknast til aflamarks þeirra, í einstökum róðrum. Einnig er heimilt við línuveiðar dagróðrabáta með línu sem stokkuð er upp í landi, að landa 15% umfram þann afla í þorski, ýsu og steinbít sem reiknast til aflamarks þeirra, í einstökum róðrum. Heimild þessi er bundin eftirfarandi skilyrðum:
2. gr.
Þrátt fyrir ákvæði 1. gr. skal línuívilnun í þorski takmarkast við 3.500 lestir, 1.425 lestir af ýsu og 775 lestir af steinbít, miðað við óslægðan fisk, sem skiptast þannig innan fiskveiðiársins:
Tímabil | Þorskur | Ýsa | Steinbítur | |
1. | September – nóvember | 1.120 | 518 | 36 |
2. | Desember – febrúar | 1.327 | 456 | 116 |
3. | Mars – maí | 799 | 263 | 470 |
4. | Júní – ágúst | 254 | 188 | 153 |
3. gr.
Fiskistofa fylgist með línuafla og tilkynnir ráðuneytinu hvenær líklegt megi telja að viðmiðunarafla hvers tímabils verði náð sbr. 2. gr. Náist ekki að veiða viðmiðunarafla einhvers tímabils bætast ónýttar heimildir við viðmiðunarafla næsta tímabils á eftir. Ráðuneytið tilkynnir síðan frá hvaða degi tiltekinn afli reiknast að fullu til aflamarks.
4. gr.
Útgerðaraðili skal tilkynna Fiskistofu fyrirfram um upphaf og lok þess tíma sem línuveiðar samkvæmt 1. gr. eru fyrirhugaðar. Fiskistofa ákveður nánar hvernig tilkynningunni skuli háttað. Tilkynningin gildir aldrei lengur en til loka fiskveiðiárs.
5. gr.
Reglugerð þessi er gefin út með stoð í 11. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, til að öðlast gildi 1. september 2015. Jafnframt er felld úr gildi reglugerð nr. 646/2014, um línuívilnun, með síðari breytingum.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 3. júlí 2015.
F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,
Jóhann Guðmundsson.
Hinrik Greipsson.