1. gr.
Ákvæði til bráðabirgða verður svohljóðandi:
Þrátt fyrir bann við síldveiðum með flotvörpu skv. 1. tl. 2. gr. eru veiðar á íslenskri sumargotssíld heimilar í friðunarhólfi vestur af landinu, skv. 1. tl. 1. gr. reglugerðar nr. 310/2007, um friðunarsvæði við Ísland, á milli 63° 35′ N og 65° N.
Ákvæði þetta gildir til og með 11. desember 2014.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Reglugerðin öðlast þegar gildi. Frá sama tíma falla úr gildi reglugerðir nr. 971/2014 og nr. 998/2014.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 28. nóvember 2014. |
F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, |
Jóhann Guðmundsson. |
Baldur P. Erlingsson.