831/2014
Reglugerð um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 605/2010 um skilyrði varðandi heilbrigði dýra og manna og varðandi heilbrigðisvottorð fyrir dýr og dýraafurðir vegna aðflutnings til Evrópusambandsins á hrámjólk og mjólkurafurðum til manneldis.
1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er í I. og II. kafla I. viðauka og XII. kafla II. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. og II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 134/2007, frá 26. október 2007, öðlast eftirfarandi ESB-gerðir gildi hér á landi:
-
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 605/2010 frá 2. júlí 2010 um skilyrði varðandi heilbrigði dýra og manna og varðandi heilbrigðisvottorð fyrir dýr og dýraafurðir vegna aðflutnings til Evrópusambandsins á hrámjólk og mjólkurafurðum til manneldis.
-
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 914/2011 frá 13. september 2011 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 605/2010 um skilyrði varðandi heilbrigði dýra og manna og varðandi heilbrigðisvottorð fyrir dýr og dýraafurðir vegna aðflutnings til Evrópusambandsins á hrámjólk og mjólkurafurðum til manneldis.
-
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 957/2012 frá 17. október 2012 um breytingu á I. viðauka við reglugerð (ESB) nr. 605/2010 að því er varðar brottfellingu færslunnar fyrir Hollensku Antillur í skránni yfir þriðju lönd þaðan sem heimilt er að flytja til Sambandsins sendingar af hrámjólk og mjólkurafurðum.
-
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 300/2013 frá 27. mars 2013 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 605/2010 um skilyrði varðandi heilbrigði dýra og manna og varðandi heilbrigðisvottorð fyrir dýr og dýraafurðir vegna aðflutnings til Evrópusambandsins á hrámjólk og mjólkurafurðum til manneldis.
-
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 209/2014 frá 5. mars 2014 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 605/2010 að því er varðar skilyrði varðandi heilbrigði dýra og manna og varðandi heilbrigðisvottorð fyrir dýr og dýraafurðir vegna aðflutnings til Sambandsins á broddi og afurðum, að stofni til úr broddi, til manneldis.
2. gr.
Ofangreindar reglugerðir framkvæmdastjórnarinnar eru birtar sem fylgiskjöl við reglugerð þessa.
3. gr.
Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995.
4. gr.
Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt XI. kafla laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.
5. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli.
6. gr.
Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 9. september 2014.
|
F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,
|
Ólafur Friðriksson.
|
Eggert Ólafsson.
Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)