1. gr.
Við reglugerðina bætist ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
Þrátt fyrir 5. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar og auglýsingar Fiskistofu um stöðvun strandveiða á svæði A, frá Eyja- og Miklaholtshreppi til Súðavíkurhrepps, nr. 741/2014, og svæði C, frá Þingeyjarsveit til Djúpavogshrepps, nr. 743/2014, eru strandveiðar sérstaklega heimilar, sem hér segir: Á A-svæði mánudaginn 18. ágúst 2014 og á C-svæði dagana 18. og 19. ágúst 2014. Að þessum tíma liðnum eru strandveiðar bannaðar, á þessum svæðum, án frekari tilkynningar.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 6. gr. a laga nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Reglugerðin er sett í samráði við Fiskistofu í þeim tilgangi að fullnýta aflamagn sem tekið var frá fyrir strandveiðar fiskveiðiárið 2013/2014.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 14. ágúst 2014. |
F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, |
Kristján Skarphéðinsson. |
Arnór Snæbjörnsson.