Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

118/2014

Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð nr. 1226/2013 um veiðar íslenskra skipa á Norðuríshafsþorski 2014, skv. samningi milli Íslands, Noregs og Rússlands. - Brottfallin

1. gr.

2. mgr. 4. gr. orðast svo:

Að auki er heimilt við þorskveiðarnar að hafa allt að 30% meðafla af öðrum tegundum. Þó má karfi ekki vera nema 20% í hverju togi og 20% af lönduðum þorskafla og grálúða má ekki vera meiri en 12% í hverju togi og ekki meiri en 7% af lönduðum þorskafla.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 21. janúar 2014.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Jóhann Guðmundsson.

Kristján Freyr Helgason.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica