1. gr.
Frá kl. 24.00, 28. nóvember 2013 til kl. 24.00, 2. desember 2013, er öll umferð og öll veiði skipa bönnuð innan brúar í Kolgrafafirði. Jafnframt er öll veiði bönnuð utan brúar í Kolgrafa- og Urthvalafirði á Snæfellsnesi, á sama tímabili, innan svæðis sem afmarkast af línu sem dregin er milli eftirfarandi punkta: 65°00,258′ N 23°04,681′ V (Eyraroddi) og 65°00,443′ N 23°00,820′ V (Selhólar).
2. gr.
Afstöðumynd af bannsvæðinu er birt sem fylgiskjal við reglugerð þessa.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi. Um leið fellur reglugerð nr. 1046/2013 úr gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 28. nóvember 2013. |
F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, |
Jóhann Guðmundsson. |
Baldur P. Erlingsson.
Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)