1. gr.
Fyrir það tímabil sem tilgreint er í 2. gr. úthlutar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra tollkvótum skv. viðaukum III A og IV A við tollalög nr. 88/2005 með síðari breytingum, í samræmi við tillögur nefndar skv. 87. gr. laga nr. 99/1993.
2. gr.
Ákvæði eftirfarandi töflu gilda um tollkvóta, tímabil innflutnings, vörumagn og verð- og magntoll:
Vara |
Tímabil |
Vörumagn |
Verðtollur |
Magntollur |
|
kg |
% |
kr./kg |
|||
Tollskrárnr.: |
Svínakjöt - vöruliðir 0203 og 0210: |
64.000 |
|||
0203.29xx |
Svínakjöt, fryst: |
01.07.12 - 30.06.13 |
0 |
795 |
|
Úr tollskrárnr.: |
Svínakjöt, saltað, þurrkað eða reykt: |
||||
0210.1200 |
Slög og sneiðar af þeim, beinlaust |
01.07.12 - 30.06.13 |
0 |
569 |
|
Tollskrárnr.: |
|||||
0210.1901 |
Reykt - beinlaust |
01.07.12 - 30.06.13 |
0 |
646 |
|
Úr tollskrárnr.: |
|||||
0210.1909 |
Annars - beinlaust |
01.07.12 - 30.06.13 |
0 |
646 |
|
Tollskrárnr.: |
Kinda- eða geitakjöt - vöruliðir |
345.000 |
|||
0204.3000 |
Lambaskrokkar, heilir eða hálfir - frystir |
01.07.12 - 30.06.13 |
0 |
213 |
|
0204.4xxx |
Kindakjöt, fryst |
01.07.12 - 30.06.13 |
0 |
731 |
|
0204.5000 |
Geitakjöt |
01.07.12 - 30.06.13 |
0 |
213 |
|
Úr tollskrárnr.: |
Kindakjöt, saltað, þurrkað eða reykt. |
||||
0210.9921 |
Beinlaust |
01.07.12 - 30.06.13 |
0 |
475 |
|
0210.9929 |
Annars |
01.07.12 - 30.06.13 |
0 |
475 |
|
0210.9931 |
Beinlaust |
01.07.12 - 30.06.13 |
0 |
701 |
|
0210.9939 |
Annars |
01.07.12 - 30.06.13 |
0 |
701 |
|
Kjöt af alifuglum - vöruliður 0207: |
59.000 |
||||
Tollskrárnr.: |
Af hænsnum af tegundinni |
||||
0207.1xxx |
Af hænsnum, fryst |
01.07.12 - 30.06.13 |
0 |
292 |
|
Af kalkúnum: |
|||||
0207.2xxx |
Af kalkúnum, fryst |
01.07.12 - 30.06.13 |
0 |
401 |
|
Af öndum, gæsum eða perluhænsnum: |
|||||
0207.4xxx |
Af öndum, fryst |
01.07.12 - 30.06.13 |
0 |
401 |
|
0207.5xxx |
Af gæsum, fryst |
01.07.12 - 30.06.13 |
0 |
401 |
|
0207.6xxx |
Af perluhænsnum, fryst |
01.07.12 - 30.06.13 |
0 |
401 |
|
Tollskrárnr.: |
Annað kjöt og ætir hlutar af dýrum, fryst |
12.000 |
|||
0208.9001 |
Dúfur |
01.07.12 - 30.06.13 |
0 |
981 |
|
0208.9002 |
Fasanar |
01.07.12 - 30.06.13 |
0 |
981 |
|
0208.9004 |
Dádýr |
01.07.12 - 30.06.13 |
0 |
981 |
|
Úr tollskrárnr.: |
|||||
0208.9019 |
Annars - Lynghænur og strútar, fryst |
01.07.12 - 30.06.13 |
0 |
981 |
3. gr.
Tollkvótum er úthlutað samkvæmt auglýsingu sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins þar sem vísað er til skilmála reglugerðar þessarar.
4. gr.
Berist umsóknir um meira magn innflutnings en auglýstum tollkvóta nemur hverju sinni, skal leita tilboða í tollkvóta vegna viðkomandi vöruliðar. Tilboð skulu ráða úthlutun. Til þess að tilboð teljist gilt skal því fylgja ábyrgðaryfirlýsing banka, sparisjóðs eða vátryggingafélags þar sem fram kemur að viðkomandi ábyrgðarveitandi tryggi að tilboðsgjafi geti staðið við tilboð sitt.
Tilboðsgjafi sá er hæst býður skal leysa til sín úthlutaðan tollkvóta með greiðslu andvirðis hans innan sjö daga frá dagsetningu tilkynningar um niðurstöðu útboðs.
Úthlutun skv. 1. og 2. mgr. er ekki framseljanleg.
5. gr.
Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði reglugerðar nr. 448/2012 um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins.
6. gr.
Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum skv. 82. gr. laga nr. 99/1993. Með mál út af brotum skal farið að hætti sakamála.
7. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 65. gr. og 65. gr. A laga nr. 99/1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi og gildir til 30. júní 2013.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 24. maí 2012.
Steingrímur J. Sigfússon.
Ása Þórhildur Þórðardóttir.