1. gr.
Á tímabilinu frá og með 14. maí til og með 31. júlí 2012, er skipum sem eru 105 brl að stærð eða minni heimilt að stunda rækjuveiðar á Breiðafirði, sunnan 65°10´N og utan línu, sem dregin er réttvísandi norður frá Krossnesvita. Við veiðar á þessu svæði skal varpa skipanna búin seiðaskilju, sbr. reglugerð nr. 396, 22. apríl 2005, um úthafsrækjuveiðisvæði og notkun seiðaskilju við rækjuveiðar, með síðari breytingum og smárækjuskilju eða net á legg í a.m.k. fjórum öftustu metrum vörpunnar, sbr. reglugerð nr. 543, 22. júlí 2002, um möskvastærðir og útbúnað varpna til veiða á botnfiski, rækju og humri, með síðari breytingum Afli sem fenginn er við þessar veiðar reiknast til úthafsrækjuafla skipsins.
2. gr.
Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum samkvæmt lögum nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands með síðari breytingum. Með mál út af brotum skal farið að hætti sakamála.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands til þess að öðlast gildi 14. maí 2012 og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 11. maí 2012.
F. h. r.
Jóhann Guðmundsson.
Hrefna Karlsdóttir.