1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í XII. kafla, II. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 45 frá 31. mars 2012 öðlast eftirfarandi EB-gerð gildi hér á landi:
Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2006/52/EB um breytingu á tilskipun 95/2/EB um aukefni í matvælum önnur en litarefni og sætuefni og tilskipun 94/35/EB um sætuefni til notkunar í matvælum.
2. gr.
Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2006/52/EB er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 24, frá 26. apríl 2012, bls. 155.
3. gr.
Efnisákvæði og viðaukar reglugerðarinnar breytast í samræmi við 1. og 2. gr. tilskipunar 2006/52/EB.
4. gr.
Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt nema annað sé ákvarðað skv. lögum eða sérreglum.
5. gr.
Brot gegn reglugerð þessari varða viðurlögum samkvæmt lögum nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.
6. gr.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 31. gr. a. laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 30. apríl 2012.
F. h. r.
Sigurgeir Þorgeirsson.
Baldur P. Erlingsson.