1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í II. kafla, I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 125/2011 frá 3. desember 2011 öðlast eftirfarandi ESB-gerð gildi hér á landi:
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1070/2010 um breytingu á tilskipun 2008/38/EB með því að bæta í skrána yfir fyrirhugaða notkun því sérstaka næringarmarkmiði að styrkja efnaskipti í liðamótum þegar um er að ræða slitgigt hjá hundum og köttum.
2. gr.
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1070/2010 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 12, frá 1. mars 2012, bls. 243.
3. gr.
Viðauki þessarar reglugerðar breytir 3. kafla "Sérfóður" í 5. viðauka reglugerðar nr. 340/2001.
4. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 7. gr. laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.
5. gr.
Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 13. mars 2012.
F. h. r.
Sigurgeir Þorgeirsson.
Indriði B. Ármannsson.