Iðnaðarráðuneyti

1090/2011

Reglugerð fyrir Hitaveitu Bæjarhrepps. - Brottfallin

I. KAFLI

Rekstrarform.

1. gr.

Eignarhald.

Hitaveita Bæjarhrepps er sjálfstætt fyrirtæki, sem Bæjarhreppur á og starfrækir.

2. gr.

Tilgangur.

Tilgangur hitaveitunnar er að afla, selja og veita heitu vatni um orkusvæði sitt og reka aðra starfsemi því tengda.

3. gr.

Veitusvæði.

Orkusvæði hitaveitunnar er þéttbýli Borðeyrar og nágrennis. Heimilt er að ákvarða orku­svæði veitunnar nánar á hverjum tíma á meðan að uppbyggingu veitukerfisins er ekki lokið.

4. gr.

Stjórn.

Yfirstjórn hitaveitunnar er í höndum sveitarstjóra.

5. gr.

Verksvið stjórnar og veitustjóri.

Sveitarstjórn ræður framkvæmdastjóra hitaveitunnar. Veitustjóri annast allan daglegan rekstur hennar og skal í þeim efnum fara eftir stefnu og fyrirmælum, sem sveitarstjórn gefur. Veitustjóri ræður aðra starfsmenn til veitunnar.

6. gr.

Fjárhagur.

Hitaveitan skal hafa sjálfstæðan fjárhag og sjálfstætt reikningshald. Reikningsárið er það sama og Bæjarhrepps og skulu reikningar hennar fylgja reikningum sveitarsjóðs og vera endurskoðaðir af endurskoðendum hans.

Bæjarhreppur sér um bókhald fyrirtækisins, en veitustjóri fylgist með stöðu þess á hverjum tíma og að bókhald sé rétt og tímanlega fært. Tekjum hitaveitunnar skal varið til þess að standa straum af rekstrarkostnaði hennar, viðhaldi og uppbyggingu. Ráðstöfun hagnaðar eða jöfnun taps skal ákveðin af sveitarstjórn.

Heimilt er að mynda framkvæmdasjóð er hentugur þykir til undirbúnings kostnaðarsamra framkvæmda í uppbyggingu veitunnar.

Við gerð gjaldskrár skal þess gætt að orkuverð sé við það miðað að eðlilegur afrakstur fáist af því fjármagni, sem á hverjum tíma er bundið í rekstri fyrirtækisins, einnig skal að því stefnt að fyrirtækið skili nægilegum greiðsluafgangi til þess að geta jafnan með eigin fjármagni og hæfilegum lántökum tryggt notendum sínum næga orku á hagkvæmu verði.

II. KAFLI

Almenn ákvæði.

7. gr.

Húsaveita, kaupandi o.fl.

Húsaveita er sjálfstæð veita sem tengd er við veitukerfi Hitaveitu Bæjarhrepps. Eigandi húsaveitu sem tengist veitukerfi hitaveitunnar nefnist húseigandi.

Kaupandi varmaorku eða sá sem ber ábyrgð á greiðslu hennar nefnist notandi.

8. gr.

Afhending og meðferð vatns, eignaréttur o.fl.

Varmaorkan er afhent um veitukerfi hitaveitunnar samkvæmt gildandi reglugerð og gjald­skrá.

Hitaveitunni er heimilt að semja sérstaklega um sölu á heitu vatni utan almennra sölu­skilmála. Slíkir samningar skulu háðir samþykki sveitarstjórnar.

Hitaveituvatn sem runnið hefur í gegnum hitunarkerfi húss (bakrennsli) er eign hita­veit­unnar. Hitaveitan getur heimilað notkun þess til upphitunar í gróðurhúsum, bíla­stæðum og öðrum stöðum. Hitaveitan getur afturkallað slík leyfi án bóta ef nauðsyn­legt er vegna almennra orkusparnaðarsjónarmiða. Óheimilt er að tengja vatns­dælur, varmadælur og eða annan slíkan búnað við bakrennslið nema að fengnu samþykki hitaveitunnar.

9. gr.

Afhending varmaorku og upplýsingagjöf.

Varmaorkan er afhent í formi heits vatns. Hitaveitan skal gefa kaupendum og hús­eigendum upplýsingar um þrýsting, hitastig og þess háttar ef óskað er.

10. gr.

Breytingar á þrýstingi, magni o.fl.

Óviðráðanlegar breytingar á þrýstingi, hitastigi eða magni heita vatnsins eru án ábyrgðar hitaveitunnar. Um breytingar sem stafa af óviðráðanlegum ástæðum skal hitaveitan tilkynna notendum með hæfilegum fyrirvara.

11. gr.

Endursala.

Endursala heita vatnsins er óheimil án samþykkis hitaveitunnar. Hitaveitunni er heimilt að kaupa orku til endursölu.

12. gr.

Hitamælar, þrýstimælar og sjálfvirkir lokar.

Á öllum hitakerfum tengdum hitaveitu skal vera hitamælir á útrennsli og þrýstimælir stað­settur samkvæmt fyrirmælum veitustjóra.

Á hitakerfum, tengdum dreifikerfi hitaveitu, skal nota sjálfvirka loka á afrennsli sem halda hæfilegum þrýstingi á hitakerfinu.

III. KAFLI

Veitukerfið.

13. gr.

Veitukerfið.

Hitaveitan leggur, kostar og á allar lagnir veitukerfisins, aðveituæðar, stofnæðar, dreifi­æðar, götuæðar, heimæðar og inntök inn fyrir vegg í húsnæði notanda ásamt rennslis­mæli, síu og þrýstimæli. Eigi er hitaveitunni skylt að leggja heimæðar meðan jörð er frosin, eða lóð ekki tekin í rétta hæð. Heimilt er hitaveitunni að setja nánari ákvæði um lögn heimæða í ný byggðahverfi, í skilmála þá er fylgja lóðarúthlutun. Hún annast rekstur og viðhald eigin veitukerfis.

14. gr.

Skyldur húseiganda.

Húseiganda innan orkuveitusvæðis hitaveitunnar þar sem veitukerfi hitaveitunnar liggur, er skylt að láta tengja hús sitt við hitaveituna. Heimilt er að veita undanþágu frá þessu ákvæði.

15. gr.

Mælagrind og inntak.

Hitaveitan ákveður staðsetningu mælagrindar og inntaks í samráði við húseiganda.

16. gr.

Heimæðar.

Húseigandi greiðir heimæðargjald samkvæmt gjaldskrá. Þegar aðstæður eru óvenjulegar að því er varðar fjarlægð húsveitu frá veitukerfi eða fyrirhugaða orkunotkun hús­veit­unnar, skal heimæðargjald ákveðið samkvæmt sérstökum samningi hverju sinni þar sem hliðsjón er höfð af stofnkostnaði við framkvæmdir.

17. gr.

Breytingar á húsveitu eða hitunarkerfi húss.

Kostnað við breytingar á húsveitu eða hitunarkerfi húss vegna tengingar við hitaveituna skal húseigandi/kaupandi annast og kosta.

Húseigandi/kaupandi kostar breytingar á heimæðum sem nauðsynlegar eru vegna fram­kvæmda hans.

Húseigandi skal fyrirfram sækja um leyfi til hverra þeirra framkvæmda, sem kunna að hafa í för með sér röskun á veitukerfi hitaveitunnar.

18. gr.

Aðgangur að veitukerfi, lögnum o.fl.

Hitaveitan hefur rétt til aðgangs að húsnæði því sem veitukerfi hennar liggur um til viðhalds, eftirlits og breytinga. Ef inntak hitaveitu og mælagrind eru ekki í sama herbergi skal lögn þar á milli vera óhulin eða í stokk sem auðvelt er að opna.

Starfsmenn hitaveitunnar eiga ætíð rétt til að hafa óhindraðan aðgang til skoðunar á veitum, jafnt fullgerðum sem ófullgerðum, hvort sem er til athugunar á öryggi þeirra þ.m.t. tækja, til athugunar á mælitækjum og hvort öll notkun komi rétt til mælis sam­kvæmt gjaldskrá, til álestrar á mælitæki, til lokunar vegna vanskila og til annarra þeirra aðgerða sem nauðsynlegar eru samkvæmt réttindum og skyldum hitaveitunnar.

IV. KAFLI

Húsveitur og tenging þeirra við hitaveituna.

19. gr.

Áhleypingar og inntaksstaður.

Áður en hafist er handa um lögn nýrra hitunarkerfa eða breytinga á eldri kerfum, skal sækja um orkukaupin eða breytinguna til hitaveitunnar.

Áhleypingu (tengingu) skal sækja um til hitaveitunnar með nægum fyrirvara.

Engir aðrir en umboðsmenn hitaveitunnar mega hleypa vatni úr kerfi veitunnar á hitakerfi húsa í fyrsta sinn eftir tengingu.

Hitaveitunni er heimilt að leggja heimæð eða sameiginlega heimæð um lóð og húseigandi skal sjá fyrir inntaksstað fyrir hitaveitu við útvegg kjallara eða fyrstu hæðar ef húsið er kjallaralaust, ásamt nauðsynlegu rými fyrir mælagrindur og/eða annað tilheyrandi teng­ingu við veituna. Æskilegt er að niðurfall sé í gólfi og að húsrými sé aðgengilegt starfs­mönnum hitaveitunnar.

20. gr.

Ólögmæt notkun.

Sé húsveita tengd veitukerfi hitaveitunnar, án heimildar getur hitaveitan aftengt hús­veit­una fyrirvaralaust.

21. gr.

Meðferð búnaðar og lagna.

Húseigandi/notandi ber ábyrgð á meðferð búnaðar og lagna innanhúss sem eru í eigu hitaveitunnar.

Húseiganda/notanda ber að tilkynna tafarlaust til hitaveitunnar er vart verður bilunar á búnaði og tækjum hennar.

Húseigandi/notandi greiðir kostnað við viðgerð eða endurnýjun búnaðar sem verður fyrir skemmdum af hans völdum eða frosta.

V. KAFLI

Skilmálar fyrir orkusölu.

22. gr.

Samningur um orkukaup.

Heitu vatni verður ekki hleypt á húsveitu fyrr en heimæðargjald hefur verið greitt eða um það samið.

Upphaf og lok samningsins um orkukaup eru við skráningu tilkynninga hjá hitaveitunni þess efnis.

23. gr.

Rekstrartruflanir.

Hitaveitan ber ekki fjárhagslega ábyrgð á tjóni sem leiða kann af rekstrartruflunum er verða á veitunni vegna frosta, rafmagnstruflana, náttúruhamfara eða annarra óvið­ráðan­legra atvika. Sama gildir ef rennsli í vatnsæð er stöðvað um stundarsakir vegna viðgerða eða annarra nauðsynlegra framkvæmda veitunnar. Þurfi að takmarka notkun um lengri eða skemmri tíma ákveður hitaveitan hvernig hún skuli takmörkuð. Tak­mörk­unin hefur ekki áhrif á greiðslu fastagjalds (fasts afgjalds eða mælagjalds). Hita­veitunni er ekki skylt að greiða bætur eða veita afslátt vegna takmörkunar á afhend­ingu heita vatnsins, en notandi getur sótt um afslátt vegna lækkunar á hitastigi. Nánari reglur þar um skulu settar í gjaldskrá veitunnar.

24. gr.

Orkumælar og innsigli.

Hitaveitan ákveður stærð og gerð orkumæla og eru þeir innsiglaðir af starfsmönnum hita­veitunnar.

Ef rofið er innsigli á búnaði hitaveitunnar varðar það refsingu samkvæmt almennum hegn­ingarlögum.

Ef notandi óskar að mælir sé prófaður skal hann senda skriflega beiðni þar um til hita­veitunnar. Komi í ljós við þá athugun að frávik sé 5% eða minna er heimilt að gera kaup­anda að greiða mælaálestrargjald. Sé frávikið meira skal hitaveitan greiða kostnað við prófunina og leiðrétta reikning kaupanda til samræmis við niðurstöður hennar, þó ekki fyrir lengri tímabil en tvo mánuði nema kaupandi eða hitaveitan, eftir því sem við á, geti sannað að um lengra tímabil hafi verið að ræða, þó lengst fjögur ár.

25. gr.

Reikningar, uppgjör o.fl.

Notandi skal greiða hitaveitunni gjald fyrir heita vatnið samkvæmt gildandi gjaldskrá. Verði ágreiningur á milli veitustjóra og notenda um skilning á ákvæðum gjaldskrár eða settum skilyrðum fyrir orkunotkun getur notandi skotið ágreiningnum til úrskurðar sveitar­stjórnar.

Notandi mælis er sá, sem skráður er fyrir vatnsnotkun þess hitakerfis, sem mælirinn er fyrir. Skal notandi bera ábyrgð á honum svo og vatnsnotkun hitakerfisins þar til hann lætur af notkun hans og hefur sagt notkun upp eða tilkynnt flutning.

Við breytingar á gjaldskrá skal reikningsfæra notkun í beinu hlutfalli við gildistíma hverrar gjaldskrár á því tímabili, sem reikningurinn tekur til.

Hitaveitan má byggja orkureikninga á áætlun um heitavatnsnotkun kaupanda og inn­heimta reglulega samkvæmt slíkri áætlun. Reikningar sem byggjast á staðreyndri heita­vatns­notkun nefnast álestrarreikningar, en reikningar sem byggjast á áætlaðri orku­notkun nefnast áætlunarreikningar.

Raunverulega notkun hitaveituvatns skal staðreyna eigi sjaldnar en á 12 mánaða fresti. Þegar notkun hefur verið staðreynd, skal hún reikningsfærð og gerð upp fyrir tímabilið milli álestra og koma þá áætlunarreikningar til frádráttar.

Kaupandi getur þó jafnan gegn greiðslu mælaálestrargjalds krafist aukaálestrar og uppgjörs miðað við staðreynda notkun. Ennfremur getur hann óskað eftir breytingu á áætlun um orkunotkun vegna nýrra forsendna.

Ef mælir bilar eða orkukaup eru leyfð tímabundið án mælis, áætlar hitaveitan selt heitt vatn með hliðsjón af hitaþörf hússins. Reikninga skal senda kaupanda á notkunarstað eða annan stað sem hann tiltekur.

Sé reikningur eigi greiddur innan tilgreinds frests frá gjalddaga, er fram kemur á reikn­ingi, reiknast dráttarvextir frá gjalddaga.

Heimilt er að skipta reikningi vegna heitavatnskaupa um einn mæli fyrir allt að þrjá kaupendur. Sé það gert bera kaupendur um þann mæli allir fyrir einn og einn fyrir alla ábyrgð á greiðslu hvers reiknings. Verði vanskil á greiðslu eins eða fleiri reikninga er hitaveitunni heimilt að stöðva orkuafhendingu um hinn sameiginlega mæli, sbr. 1. mgr. 26. gr.

Það eru vanskil ef gjöld fyrir orkunotkun eru ekki greidd innan tilgreinds frest frá gjald­daga reiknings.

26. gr.

Um stöðvun afhendingar á varmaorku vegna vanskila.

Hitaveitan hefur rétt til að stöðva afhendingu varmaorku til húsveitu (mælis) kaupanda, sem greiðir ekki áætlunar- eða álestrarreikning eða vanrækir skyldur sínar samkvæmt reglugerð þessari.

Til slíkra aðgerða má þá fyrst grípa eftir tilgreindan greiðslufrest á reikningi og að undan­genginni skriflegri aðvörun, sem sendist kaupanda með fimm daga fyrirvara. Hita­veitan ber ekki ábyrgð á hugsanlegum afleiðingum slíkrar lokunar.

Hitaveitan hefur rétt til að krefja notanda um greiðslu kostnaðar við undirbúning að stöðvun orkuafhendingar, framkvæmd stöðvunarinnar, svo og opnun veitunnar á ný.

Enginn má af- eða endurtengja hitaveituna nema þeir sem hitaveitan hefir veitt umboð til þess. Sé brotið gegn þessu skal farið með það sem óleyfilega orkunotkun.

Verði uppvíst að heitt vatn hafi verið notað á annan hátt en um er samið, að raskað hafi verið mælitækjum eða tengingum breytt þannig að ekki komi fram öll notkun, skal hitaveitan áætla þá orku sem notuð var óleyfilega.

27. gr.

Vanræksla.

Nú vanrækir húseigandi/kaupandi að vinna verk sem honum ber samkvæmt reglugerð þessari, eða verk er ekki unnið á viðunandi hátt og er hitaveitunni þá heimilt að láta vinna það sem þörf krefur á kostnað hans.

VI. KAFLI

Ýmis ákvæði.

28. gr.

Aðför - fjárnám.

Öll gjöld samkvæmt reglugerð þessari og gjaldskrá má innheimta með fjárnámi, skv. 10. tl. 1. mgr. 1. gr. laga nr. 90/1989 um aðför, og 79. gr. orkulaga nr. 58/1967, með síðari breytingum.

29. gr.

Viðurlög.

Brot á reglugerð þessari varðar sektum, nema þyngri refsing liggi við að lögum. Ef brot veldur skemmdum á eigum hitaveitunnar eða veldur henni tjóni á annan hátt skal hinn brotlegi auk þess bæta skaðann.

Með mál út af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti opinberra mála.

30. gr.

Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi sem samþykkt er af sveitarstjórn Bæjarhrepps, er hér með staðfest samkvæmt orkulögum nr. 58/1967, með síðari breytingum, til að öðlast gildi þegar í stað og birtist til eftirbreytni þeim sem hlut eiga að máli.

Iðnaðarráðuneytinu, 18. nóvember 2011.

F. h. r.

Kristján Skarphéðinsson.

Erla Sigríður Gestsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica