1. gr.
Fyrir það tímabil sem tilgreint er í 2. gr. úthlutar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra tollkvótum skv. 12. gr. tollalaga nr. 88/2005 og viðauka IV A, með síðari breytingum, í samræmi við tillögur nefndar skv. 87. gr. laga nr. 99/1993.
2. gr.
Ákvæði eftirfarandi töflu gilda um tollkvóta, tímabil innflutnings, vörumagn verð- og magntoll:
Vara |
Tímabil |
Vörumagn |
Verðtollur |
Magntollur |
|
kg |
% |
kr./kg |
|||
Tollskrárnr: |
|||||
Kjöt af dýrum af nautgripakyni, fryst: |
|||||
- Beinlaust: |
|||||
0202.3002 |
Lundir |
01.01.12 - 30.06.12 |
ótilgreint |
0 |
585 |
0202.3003 |
Hryggvöðvar |
01.01.12 - 30.06.12 |
ótilgreint |
0 |
435 |
0202.3004 |
Vöðvar af læri |
01.01.12 - 30.06.12 |
ótilgreint |
0 |
406 |
0202.3009 |
Annað |
01.01.12 - 30.06.12 |
ótilgreint |
0 |
240 |
3. gr.
Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði reglugerðar nr. 509/2004 um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins.
4. gr.
Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum skv. 82. gr. laga nr. 99/1993. Með mál út af brotum skal farið að hætti opinberra mála.
5. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 65. gr. A laga nr. 99/1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi og gildir til 30. júní 2012.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 23. desember 2011.
F. h. r.
Sigurgeir Þorgeirsson.
Ása Þórhildur Þórðardóttir.