1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla, I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli eftirtalinna ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 18/2010 frá 1. maí 2011 öðlast eftirfarandi EB-gerðir gildi hér á landi:
a) |
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 737/2008 um tilnefningu á tilvísunarrannsóknarstofum Bandalagsins fyrir sjúkdóma í krabbadýrum, hundaæði og berkla í nautgripum, um frekari skyldur og verkefni tilvísunarrannsóknastofa Bandalagsins fyrir hundaæði og berkla í nautgripum og um breytingu á VII. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 882/2004. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 68 frá 15. desember 2011, bls. 210. |
|
b) |
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1029/2008 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 882/2004 í því skyni að uppfæra tilvísun í tiltekna Evrópustaðla. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 68 frá 15. desember 2011, bls. 225. |
2. gr.
Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995.
3. gr.
Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.
4. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.
5. gr.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 30. janúar 2012.
F. h. r.
Sigurgeir Þorgeirsson.
Indriði B. Ármannsson.