1. gr.
Fyrir það tímabil sem tilgreint er í 2. gr. úthlutar sjávárútvegs- og landbúnaðarráðherra tollkvótum skv. 12. gr. tollalaga nr. 88/2005 og viðauka III A, með síðari breytingum.
2. gr.
Ákvæði eftirfarandi töflu a og b gilda um tímabil innflutnings, vörumagn og verðtoll:
Tollskrárnr: |
Vara |
Tímabil |
Vörumagn |
Verðtollur |
kg |
% |
|||
a) |
||||
0405.xxxx |
Smjör og önnur fita |
01.07.11- 30.06.12 |
53.000 |
215,7 |
b) |
Ostur og ystingur: |
119.000 |
||
0406.1009 |
Annað (nýr ostur, mysuostur o.fl.) |
01.07.11- 30.06.12 |
182,4 |
|
0406.2000 |
Hvers konar rifinn eða mulinn ostur |
01.07.11- 30.06.12 |
182,4 |
|
0406.3000 |
Fullunninn ostur, órifinn eða ómulinn |
01.07.11- 30.06.12 |
185,9 |
|
0406.4000 |
Gráðostur |
01.07.11- 30.06.12 |
193,3 |
|
0406.9000 |
Annar ostur |
01.07.11- 30.06.12 |
185,0 |
3. gr.
Tollkvótum er úthlutað samkvæmt auglýsingu sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins þar sem tilgreindir eru skilmálar vegna úthlutunarinnar.
4. gr.
Berist umsóknir um meira magn innflutnings en auglýstum tollkvóta nemur hverju sinni, skal leita tilboða í tollkvóta vegna viðkomandi vöruliðar. Tilboð skulu ráða úthlutun. Til þess að tilboð teljist gilt skal því fylgja ábyrgðaryfirlýsing banka, sparisjóðs eða vátryggingafélags þar sem fram kemur að viðkomandi ábyrgðarveitandi tryggi að tilboðsgjafi geti staðið við tilboð sitt.
Tilboðsgjafi sá er hæst býður skal leysa til sín úthlutaðan tollkvóta með greiðslu andvirðis hans innan sjö daga frá dagsetningu tilkynningar um niðurstöðu útboðs.
Úthlutun skv. 1. og 2. mgr. er ekki framseljanleg.
5. gr.
Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði reglugerðar nr. 509/2004 um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins.
6. gr.
Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum skv. 82. gr. laga nr. 99/1993. Með mál út af brotum skal farið að hætti opinberra mála.
7. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 65. gr. laga nr. 99/1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi og gildir til 30. júní 2012.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 6. júní 2011.
F. h. r.
Ólafur Friðriksson.
Sigríður Norðmann.