1. gr.
Á eftir 1. mgr. í 3. tl. 2. gr. reglugerðarinnar komi nýr málsliður er orðast svo:
Fyrir fóðurblöndur sem upprunnar eru frá ríkjum Evrópska efnahagssvæðisins, skal greiða að fullu andvirði þess tolls sem lagður var á við innflutning.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 3. mgr. 31. gr. laga nr. 99/1993, um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, sbr. 15. gr. laga nr. 87/1995 um breytingu á þeim lögum.
Reglugerðin öðlast gildi 1. maí 2011 og gildir til og með 31. júlí 2011.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 28. apríl 2011.
F. h. r.
Ólafur Friðriksson.
Sigríður Norðmann.