1. gr.
Fyrir það tímabil sem tilgreint er í 2. gr. úthlutar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra tollkvótum samkvæmt viðauka IV A við tollalög nr. 88/2005, með síðari breytingum, í samræmi við tillögur nefndar skv. 87. gr. laga nr. 99/1993.
2. gr.
Ákvæði eftirfarandi töflu gilda um tollkvóta, tímabil innflutnings, verð- og magntoll:
Vara |
Tímabil |
Vörumagn |
Verðtollur |
Magntollur |
||
Tollskrárnr. |
kg |
% |
kr./kg |
|||
0208.4001 |
Hvalkjöt, fryst |
01.01.-31.12.11 |
ótilgr. |
0 |
0 |
|
0208.4002 |
Hvalaafurðir, ót.a., frystar |
01.01.-31.12.11 |
ótilgr. |
0 |
0 |
|
0208.4003 |
Hvalkjöt og aðrar hvalaafurðir, nýtt eða kælt |
01.01.-31.12.11 |
ótilgr. |
0 |
0 |
|
0208.9003 |
Rjúpur, frystar |
01.01.-31.12.11 |
ótilgr. |
0 |
0 |
Tímabil þau sem tilgreind eru miðast við tollafgreiðslu en ekki við komu flutningsfars til landsins og skal tollafgreiðslu lokið innan tímabils.
3. gr.
Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði reglugerðar nr. 509/2004 um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins.
4. gr.
Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum skv. 82. gr. laga nr. 99/1993. Með mál út af brotum skal farið að hætti sakamála.
5. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 65. gr. A laga nr. 99/1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi og gildir til og með 31. desember 2011.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 18. nóvember 2010.
Jón Bjarnason.
Arnór Snæbjörnsson.