1. gr.
Almenn skilyrði fyrir úthlutun aflamarks.
Úthluta skal aflamarki til fiskiskipa sem uppfylla eftirfarandi skilyrði:
Þetta skilyrði á þó ekki við ef einstaklingur eða lögaðili gera út fleiri en eitt fiskiskip sem skráð eru í fleiri en einu byggðarlagi. Í þeim tilvikum er heimilt að úthluta aflamarki byggðarlaga til fiskiskipa, sem uppfylla skilyrði a- og b-liðar og eru í eigu eða leigu einstaklinga eða lögaðila með heimilisfang í öðru byggðarlagi en umsókn um byggðakvóta beinist að, ef þeir stunda einnig útgerð með skip sem skráð eru í því byggðarlagi sem þeir hafa heimilisfang í.
2. gr.
Sérstök skilyrði fyrir úthlutun aflamarks innan einstakra byggðarlaga.
Ráðherra getur heimilað á grundvelli rökstuddra tillagna sveitarstjórna að sett verði sérstök skilyrði fyrir úthlutun aflamarks í einstökum byggðarlögum er víkja frá eða eru til viðbótar hinum almennu skilyrðum enda séu þau byggð á málefnalegum og staðbundnum ástæðum og í samræmi við hagsmuni viðkomandi byggðarlaga.
3. gr.
Málsmeðferð á tillögum sveitarstjórna, staðfesting o.fl.
Ráðuneytið skal leita eftir afstöðu sveitarstjórna til þess hvort þær óski eftir að setja sérstök skilyrði fyrir úthlutun aflamarksins innan einstakra byggðarlaga. Sveitarstjórnir skulu hafa fjögurra vikna frest til að senda ráðuneytinu tillögur sínar.
Eftir að tillögur sveitarstjórna hafa borist skulu þær birtar með aðgengilegum hætti, svo sem á vefsíðu ráðuneytisins, eigi síðar en sjö dögum áður en tekin verður afstaða til þeirra.
Ef fallist verður á tillögur sveitarstjórna um slík skilyrði staðfestir ráðuneytið tillögurnar, auglýsir þær í B-deild Stjórnartíðinda og felur Fiskistofu að úthluta aflamarki byggðarlagsins samkvæmt þeim. Berist tillögur sveitarstjórna ekki innan áðurnefnds frests eða ef ráðherra fellst ekki á tillögur sveitarstjórna fer um úthlutun aflamarks einstakra byggðarlaga til fiskiskipa samkvæmt 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða með síðari breytingum og ákvæðum þessarar reglugerðar.
4. gr.
Viðmiðanir um úthlutun aflamarks til einstakra fiskiskipa.
Skipting þess aflamarks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal skipt hlutfallslega af því aflamarki sem fallið hefur til viðkomandi byggðarlags, miðað við landaðan afla í þorskígildum talið innan viðkomandi byggðarlags á tímabilinu 1. september 2009 til 31. ágúst 2010. Komi minna en 100 þorskígildiskíló í hlut fiskiskips samkvæmt framangreindum reglum fellur hlutur til þess niður og skiptist hlutur þess milli annarra fiskiskipa frá sama byggðarlagi sem uppfylla skilyrði fyrir úthlutun í samræmi við skiptingu samkvæmt úthlutunarreglum.
Afli af fiskiskipum sem landað er í sveitarfélagi af bátum sem ekki eru skráðir innan viðkomandi sveitarfélags á sama tíma, telst ekki til landaðs afla samkvæmt 1. mgr.
Ef eigandi eða leigutaki fiskiskips, sbr. 1. gr., hefur endurnýjað fiskiskip sitt á því viðmiðunartímabili sem fram kemur í 1. mgr. og flutt aflahlutdeildir af eldra skipinu yfir á endurnýjaða skipið getur hann í umsókn sinni óskað eftir að við úthlutun aflamarks skv. 1. mgr. sé tekið tillit til landaðs afla eldra skips umsækjanda í sömu hlutföllum og nemur þeim aflahlutdeildum sem hafa verið fluttar milli skipanna.
Ef eigandi eða leigutaki fiskiskips hefur tekið við útgerð þess á því viðmiðunartímabili sem fram kemur í 1. mgr. er ekki heimilt að taka tillit til landaðs afla fyrri útgerðaraðila skipsins.
Ef fiskiskip er endurnýjað eftir að skipting aflamarks hefur farið fram samkvæmt 1. mgr. en áður en uppfyllt hafa verið skilyrði samkvæmt 6. gr. er heimilt að óska eftir að flytja vilyrði til úthlutunar aflamarks af eldra skipinu yfir á endurnýjaða skipið, enda hafi verið gerður fyrirvari þess efnis í kaupsamningi eða afsali, hafi skip verið selt á því tímamarki.
5. gr.
Framkvæmd úthlutunar.
Fiskistofa annast úthlutun aflamarks, sem kemur í hlut einstakra byggðarlaga, til fiskiskipa og skal auglýsa eftir umsóknum útgerða í a.m.k. tveimur dagblöðum og á vefsíðu Fiskistofu: www.fiskistofa.is. Í umsóknum skulu koma fram upplýsingar sem Fiskistofa ákveður og skal umsóknum skilað á sérstökum eyðublöðum sem stofnunin leggur til. Umsóknarfrestur skal vera tvær vikur. Fiskistofa annast mat og úrvinnslu umsókna og skal svara öllum umsóknum svo fljótt sem unnt er.
Ákvarðanir Fiskistofu varðandi úthlutun samkvæmt þessari grein er heimilt að kæra til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins. Kærufrestur er tvær vikur frá tilkynningu Fiskistofu um ákvörðun og skal úthlutun ekki fara fram fyrr en að þeim fresti liðnum. Skal ráðuneytið úrskurða um kærur innan tveggja mánaða. Ráðuneytið getur ákveðið að úthlutun aflamarks til skipa í tilteknu byggðarlagi verði frestað að hluta eða öllu leyti þar til það hefur lokið afgreiðslu á kærum sem borist hafa vegna úthlutunar þar.
6. gr.
Löndun til vinnslu.
Fiskiskipum er skylt að landa til vinnslu innan hlutaðeigandi byggðarlaga á tímabilinu frá 1. júlí 2010 til 31. ágúst 2011 afla sem nemur, í þorskígildum talið, tvöföldu magni þess aflamarks sem þau fá úthlutað samkvæmt reglugerð þessari og skal úthlutun til þeirra ekki fara fram nema að því leyti sem það skilyrði er uppfyllt skv. vigtunar- og ráðstöfunarskýrslum sem borist hafa Fiskistofu. Einnig er það skilyrði fyrir úthlutun að ekki hafi verið flutt meira aflamark í þorskígildum talið á fiskveiðiárinu 2010/2011, frá viðkomandi fiskiskipum en flutt hefur verið til þeirra þegar afhending aflamarks á sér stað. Afla sem boðinn er upp á fiskmarkaði telst ekki hafa verið landað til vinnslu samkvæmt þessari grein. Þá er einungis heimilt að meta til viðmiðunar samkvæmt þessari grein landaðan afla sem ekki hefur áður verið metinn til úthlutunar byggðakvóta.
Með vinnslu á bolfiski skv. 1. mgr. er átt við flökun, flatningu eða herslu.
Ef eigandi eða leigutaki fiskiskips, sbr. 1. gr., hefur endurnýjað fiskiskip sitt eftir að lokið er því viðmiðunartímabili sem fram kemur í 1. mgr. 4. gr. en áður en uppfyllt hafa verið skilyrði samkvæmt þessari grein og eftirstöðvar á rétti til úthlutunar skv. 5. mgr. 4. gr. verið flutt af eldra skipinu yfir á endurnýjaða skipið, sbr. 3. mgr. 4. gr., skal við mat á hvort uppfyllt eru skilyrði samkvæmt þessari grein einnig heimilt að miða við landaðan afla beggja skipanna í viðkomandi byggðarlagi.
Ráðherra er heimilt, að fengnum rökstuddum tillögum sveitarstjórnar, að víkja frá ákvæðum þessarar greinar enda sé það gert á grundvelli málefnalegra og staðbundinna ástæðna. Um málsmeðferð og staðfestingu tillagna sveitarstjórna samkvæmt þessari grein skulu gilda ákvæði 2. gr.
Fiskistofu er heimilt samkvæmt beiðni útgerðaraðila að úthluta aflamarki fyrir fiskveiðiárið í fimm áföngum, 1/5 hverju sinni enda séu skilyrði um landað magn til vinnslu samkvæmt ákvæðum þessarar greinar uppfyllt í sama hlutfalli á sama tíma. Hafi skilyrði fyrir úthlutun aflamarks til einstakra fiskiskipa á grundvelli reglugerðar þessarar ekki verið uppfyllt að fullu í lok þess tímabils sem fram kemur í 1. mgr. þessarar greinar, fellur niður réttur til aflamarks í hlutfalli við það sem upp á vantar að skilyrði séu uppfyllt. Því aflamarki sem óráðstafað er skal Fiskistofa endurúthluta til annarra fiskiskipa í viðkomandi byggðarlagi, sem uppfyllt hafa skilyrði þessarar greinar. Endurúthlutun skal fara fram í samræmi við skiptingu aflamarks samkvæmt þeim úthlutunarreglum sem í gildi eru fyrir hvert byggðarlag á þeim tíma. Takist ekki að endurúthluta öllu aflamarki viðkomandi byggðarlags fyrir lok fiskveiðiársins er Fiskistofu heimilt að úthluta aflamarki fiskveiðiársins 2010/2011 á fiskveiðiárinu sem hefst 1. september 2011.
7. gr.
Lágmarksverð.
Verð fyrir afla sem landað er til vinnslu til að uppfylla skilyrði 6. gr. skal ekki vera lægra en það verð sem ákveðið er af Verðlagsstofu skiptaverðs.
8. gr.
Tryggingar fyrir greiðslum.
Heimilt er eigendum og útgerðum fiskiskipa að krefja vinnslustöðvar um tryggingar fyrir greiðslu afla sem landað er í byggðarlögum samkvæmt 6. gr., t.d. í formi bankaábyrgðar.
9. gr.
Framsal.
Framsal aflamarks sem úthlutað er samkvæmt reglugerð þessari er óheimilt en þó skulu heimil jöfn skipti á aflamarki í þorskígildum talið. Framsal aflamarks skal þó vera heimilt hafi fiskiskip efnt löndunar- og vinnsluskyldu í samræmi við 6. gr.
10. gr.
Gildistaka.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 5. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 17. desember 2010.
Jón Bjarnason.
Hinrik Greipsson.