1. gr.
Eftirfarandi breytingar eru gerðar á 3. gr.:
Veiðitímabil innfjarðarækju stendur frá 1. nóvember 2010 til og með 30. apríl 2011. Heimilt er með tilkynningu til leyfishafa að breyta veiðitíma á ákveðnum veiðisvæðum innfjarðarækju, að fenginni umsögn Hafrannsóknastofnunar.
2. gr.
Reglugerð þessi er gefin út með stoð í ákvæðum laga nr. 116, 10. ágúst 2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem eiga hlut að máli.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 27. október 2010.
F. h. r.
Jóhann Guðmundsson.
Hrefna Karlsdóttir.