1. gr.
Innleiðing.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. og II. kafla, I. viðauka og XII. kafla, II. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. og II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 127/2009, frá 5. desember 2009, öðlast eftirfarandi EB-gerð gildi hér á landi:
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1213/2008 um samræmda eftirlitsáætlun Bandalagsins til margra ára fyrir árin 2009, 2010 og 2011 til þess að tryggja að farið sé að ákvæðum um hámarksgildi og meta þau váhrif sem neytendur verða fyrir af völdum varnarefnaleifa í og á matvælum úr jurta- og dýraríkinu.
2. gr.
Fylgiskjal.
Ofangreind reglugerð framkvæmdastjórnarinnar skv. 1. gr. er birt sem fylgiskjal við reglugerð þessa.
3. gr.
Aðlögun vegna 1. gr. reglugerðar (EB) nr. 1213/2008.
Eftirfarandi aðlögun verður á 1. gr. reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1213/2008:
"Árin 2009, 2010 og 2011 er stjórnvöldum á Íslandi heimilt að láta greiningu ná til sama 61 varnarefnis og vöktun matvæla á markaði í landinu náði til árið 2008."
4. gr.
Aðlögun vegna II. viðauka reglugerðar (EB) nr. 1213/2008.
Eftirfarandi aðlögun verður á II. viðauka reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1213/2008:
IS |
12(*) 15(**) |
NO |
12(*) 15(**) |
5 gr.
Eftirlit.
Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt vegna matvæla í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.
6. gr.
Þvingunarúrræði og viðurlög.
Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.
7. gr.
Lagastoð.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.
8. gr.
Gildistaka.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 8. september 2010.
Jón Bjarnason.
Baldur P. Erlingsson.
Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)