1. gr.
Innleiðing.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í XII. kafla II. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 26/2009, frá 18. mars 2009, öðlast eftirfarandi EB-gerð gildi hér á landi:
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 345/2008 um nákvæmar reglur um innflutning frá þriðju löndum sem kveðið er á um í reglugerð ráðsins (EBE) nr. 2092/91 um lífræna framleiðslu landbúnaðarafurða og merkingar þar að lútandi á landbúnaðarafurðum og matvælum (endurútgefin).
2. gr.
Fylgiskjal.
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar skv. 1. gr. er birt sem fylgiskjal við reglugerð þessa.
3. gr.
Eftirlit.
Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 4. og 5. gr. laga nr. 162/1994 um lífræna landbúnaðarframleiðslu, með síðari breytingum.
4. gr.
Viðurlög.
Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 7. gr. laga nr. 162/1994 um lífræna landbúnaðarframleiðslu, með síðari breytingum.
5. gr.
Reglugerðarheimild og gildistaka.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 6. gr. laga nr. 162/1994 um lífræna landbúnaðarframleiðslu, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 8. mars 2010.
F. h. r.
Sigurgeir Þorgeirsson.
Baldur P. Erlingsson.
Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)