1. gr.
Við 3. mgr. 1. gr. bætist nýr málsliður sem orðast svo:
Makrílveiðar í net eru óheimilar.
2. gr.
2. tl. 1. mgr. 2. gr. orðast svo:
3.000 lestum skal ráðstafað til skipa sem stunda veiðar á línu og handfæri og til veiða í gildru.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 116, 10. ágúst 2006, um stjórn fiskveiða, laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum og laga nr. 151, 27. desember 1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands, með síðari breytingum til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 939/2009 um stjórn makrílveiða íslenskra skipa árið 2010.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 13. apríl 2010.
F. h. r.
Sigurgeir Þorgeirsson.
Steinar I. Matthíasson.