1. gr.
Á 3. gr. verða eftirfarandi breytingar:
2. gr.
3. mgr. orðist svo: Veiðitímabil síldar er frá og með 1. september 2009 til og með 30. apríl 2010. Stjórn veiðanna og skipulag þeirra skal unnið í samráði við Hafrannsóknastofnunina í því skyni að kanna, með sýnatökum, ástand síldarstofnsins. Veiðiskip skulu haga sýnatökum í samráði við Hafrannsóknastofnunina og með þeim hætti sem stofnunin ákveður.
3. gr.
Reglugerð þessi er gefin út með stoð í ákvæðum laga nr. 116, 10. ágúst 2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum og laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum, til þess að öðlast gildi 1. janúar 2010 og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 29. desember 2009.
F. h. r.
Steinar Ingi Matthíasson.
Hrefna Gísladóttir.