1. gr.
Frá og með 4. nóvember 2009 til og með 31. desember 2009, eru allar veiðar með fiskibotnvörpu bannaðar á svæði suður af Reykjanesskaga, sem að austan markast af línu sem dregin er frá Selvogsvita í punkt 63°30'N, 21°39'V. Að sunnan markast svæðið af línu, sem dregin er úr punkti 63°30'N, 21°39'V í punkt 63°40'N, 22°32'V. Að vestan markast svæðið af línu sem dregin er úr punkti 63°40'N, 22°32'V réttvísandi norður að Staðarbergi.
2. gr.
Frá og með 4. nóvember 2009 til og með 30. apríl 2010, eru allar veiðar með fiskibotnvörpu bannaðar á svæði út af Faxaflóa, sem að sunnan markast af línu sem dregin er réttvísandi 270° frá Sandgerðisvita. Að vestan markast svæðið af 23°42'V og að norðan af 64°20'N.
3. gr.
Brot á ákvæðum reglugerðar þessarar varða viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Með mál út af brotum skal farið að hætti opinberra mála.
4. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 30. október 2009.
F. h. r.
Steinar Ingi Matthíasson.
Kristján Freyr Helgason.