1. gr.
Fyrir það tímabil sem tilgreint er í 2. gr. úthlutar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra tollkvótum skv. viðauka IV A við tollalög nr. 88/2005 með síðari breytingum í samræmi við tillögur nefndar skv. 87. gr. laga nr. 99/1993.
2. gr.
Ákvæði eftirfarandi töflu gilda um tollkvóta, tímabil innflutnings, vörumagn, verð- og magntoll:
Vara |
Tímabil |
Vörumagn |
Verðtollur |
Magntollur |
|
kg |
% |
kr./kg |
|||
Tollskrárnr.: |
|||||
0208.9007 |
Beinlaust hreindýrakjöt, fryst |
23.07.09 - 30.06.10 |
ótilgreint |
0 |
922 |
Hreindýrakjöt með beini, fryst: |
|||||
0208.9008 |
Skrokkar og hálfir skrokkar |
23.07.09 - 30.06.10 |
ótilgreint |
0 |
0 |
0208.9009 |
Annað |
23.07.09 - 30.06.10 |
ótilgreint |
0 |
922 |
3. gr.
Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði reglugerðar nr. 509/2004 um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins.
4. gr.
Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum skv. 82. gr. laga nr. 99/1993. Með mál út af brotum skal farið að hætti opinberra mála.
5. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 65. gr. A og 87. gr. laga nr. 99/1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi og gildir til 30. júní 2010.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 21. júlí 2009.
Jón Bjarnason.
Sigríður Norðmann.