493/2009
Reglugerð um (42.) breytingu á reglugerð nr. 340/2001 um eftirlit með fóðri. - Brottfallin
Stofnreglugerð:
Felld brott með:
1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í II. kafla, I. viðauka, skulu öðlast gildi hér á landi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 1/2009 frá 6. febrúar 2009 öðlast eftirfarandi EB-gerðir gildi hér á landi:
-
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1500/2007 frá 18. desember 2007 um leyfi fyrir nýrri notkun á 6-fýtasa EC 3.1.3.26 (Ronozyme) sem aukefni í fóðri.
-
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1501/2007 frá 18. desember 2007 um leyfi fyrir nýrri notkun á endó-1,4-beta-xýlanasa EC 3.2.1.8 (Safizym X) sem aukefni í fóðri.
-
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1519/2007 frá 19. desember 2007 um breytingu á reglugerðum (EB) nr. 2430/1999, (EB) nr. 418/2001 og (EB) nr. 162/2003 að því er varðar skilmála leyfis fyrir tilteknum aukefnum í fóðri í flokknum hníslalyf og önnur lyf.
-
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1520/2007 frá 19. desember 2007 um varanlegt leyfi fyrir tilteknum aukefnum í fóðri.
-
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1521/2007 frá 19. desember 2007 um leyfi fyrir nýrri notkun á Enterococcus faecium DSM 7134 (Bonvital) sem aukefni í fóðri.
2. gr.
Um aukefni samkvæmt ofangreindum reglugerðum framkvæmdastjórnarinnar (EB) vísast að öðru leyti til 13. gr. reglugerðar nr. 340/2001 og 3. viðauka sömu reglugerðar.
3. gr.
Ofangreindar reglugerðir framkvæmdastjórnarinnar (EB) eru birtar sem fylgiskjöl A, B, C, D og E við reglugerð þessa.
4. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 7. gr. laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 22. maí 2009.
F. h. r.
Sigurgeir Þorgeirsson.
Baldur P. Erlingsson.
Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)