1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í II. kafla, I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli eftirtalinna ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar öðlast eftirfarandi EB-gerðir gildi hér á landi:
A) |
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 516/2007 frá 10. maí 2007 um varanlegt leyfi fyrir aukefni í fóðri. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 151/2007 frá 8. desember 2007. |
|
B) |
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 537/2007 frá 15. maí 2007 um leyfi fyrir gerjunarafurðinni Aspergillus oryzae NRRL 458 (Amaferm) sem aukefni í fóðri. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 151/2007 frá 8. desember 2007. |
|
C) |
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 538/2007 frá 15. maí 2007 um leyfi fyrir nýrri notkun á Enterococcus faecium DSM 7134 (Bonvital) sem aukefni í fóðri. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 152/2007 frá 8. desember 2007. |
|
D) |
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 634/2007 frá 7. júní 2007 um að leyfa selenmetíónín, framleitt með Saccharomyces cerevisiae NCYC R397, sem aukefni í fóðri. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 152/2007 frá 8. desember 2007. |
2. gr.
Ofangreindar reglugerðir framkvæmdastjórnarinnar eru birtar sem fylgiskjöl A, B, C og D við reglugerð þessa.
3. gr.
Um aukefni samkvæmt ofangreindum reglugerðum framkvæmdastjórnarinnar (EB) vísast að öðru leyti til 13. gr. reglugerðar nr. 340/2001 og 3. viðauka sömu reglugerðar.
4. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 7. gr. laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 20. janúar 2009.
F. h. r.
Sigurgeir Þorgeirsson.
Baldur P. Erlingsson.
Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)