1132/2021
Reglugerð um (42.) breytingu á reglugerð nr. 672/2008 um hámarksgildi varnarefnaleifa í matvælum og fóðri.
1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í II. kafla I. viðauka og XII. kafla II. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. og II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli eftirtalinna ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar öðlast eftirtaldar ESB-gerðir gildi hér á landi:
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1565 frá 27. október 2020 um breytingu á II., III. og IV. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 að því er varðar hámarksgildi leifa fyrir 1,4-díamínóbútan, 1-metýlsýklóprópen, ammóníumasetat, bífenasat, klórantranilípról, klórmekvat, sýpródiníl, kalkstein, mandíprópamíð, pipar og pýridaben og fæliefnin blóðmjöl, útdrátt úr þangi og þara og trímetýlamínhýdróklóríð í eða á tilteknum afurðum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 196/2021, frá 9. júlí 2021. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 57, frá 2. september 2021, bls. 96.
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1566 frá 27. október 2020 um breytingu á II. og III. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 að því er varðar hámarksgildi leifa fyrir búpírímat, karfentrasónetýl, etirímól og pýríófenón í eða á tilteknum afurðum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 196/2021, frá 9. júlí 2021. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 57, frá 2. september 2021, bls. 123.
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/155 frá 9. febrúar 2021 um breytingu á II., III. og V. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 að því er varðar hámarksgildi leifa fyrir koltetraklóríð, klóróþalóníl, klórprófam, dímetóat, etóprófos, fenamíðón, metíókarb, ómetóat, própíkónasól og pýmetrósín í eða á tilteknum afurðum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 197/2021, frá 9. júlí 2021. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 57, frá 2. september 2021, bls. 152.
2. gr.
Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995, um matvæli, með síðari breytingum.
3. gr.
Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995, um matvæli.
4. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995, um matvæli.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 21. september 2021.
Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.