1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í XII. kafla, II. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 79 frá 7. júlí 2007 öðlast eftirfarandi EB-gerð gildi hér á landi:
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1991/2006 frá 21. desember 2006 um breytingu á reglugerð (EBE) nr. 2092/91 um lífræna framleiðslu landbúnaðarafurða og merkingar þar að lútandi á landbúnaðarafurðum og matvælum.
2. gr.
Ofangreind reglugerð framkvæmdastjórnarinnar er birt sem fylgiskjal við reglugerð þessa.
3. gr.
Með innleiðingu reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1991/2006 breytast eftirfarandi:
4. gr.
b-liður 11. tl. 9. gr. reglugerðar nr. 74/2002 fellur niður.
5. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 6. gr. laga nr. 162/1994 um lífræna landbúnaðarframleiðslu. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 9. febrúar 2009.
F. h. r.
Sigurgeir Þorgeirsson.
Baldur P. Erlingsson.
Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)