Frá og með 5. nóvember 2005 til og með 31. desember 2005, eru allar veiðar með fiskibotnvörpu bannaðar á svæði suður af Reykjanesskaga, sem að austan markast af línu sem dregin er frá Selvogsvita í punkt 63°30´N, 21°39´V. Að sunnan markast svæðið af línu, sem dregin er úr punkti 63°30´N, 21°39´V í punkt 63°40´N, 22°32´V. Að vestan markast svæðið af línu sem dregin er úr punkti 63°40´N, 22°32´V réttvísandi norður að Staðarbergi.
Frá og með 5. nóvember 2005 til og með 30. apríl 2006, eru allar veiðar með fiskibotnvörpu bannaðar á svæði út af Faxaflóa, sem að sunnan markast af línu sem dregin er réttvísandi 270° frá Sandgerðisvita. Að vestan markast svæðið af 23°42´V og að norðan af 64°20´N.
Brot á ákvæðum reglugerðar þessarar varða viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Með mál út af brotum skal farið að hætti opinberra mála.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.