1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í XII. kafla, II. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli eftirtalinna ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar öðlast eftirfarandi EB-gerðir gildi hér á landi:
Reglugerð framkvæmdastjórnar (EB) nr. 1452/2003 frá 14. ágúst 2003 um að viðhalda undanþágunni, sem kveðið er á um í a-lið 3. mgr. 6. gr. reglugerðar ráðsins (EBE) nr. 2092/91 að því er varðar tilteknar tegundir fræs og plöntufjölgunarefnis, og að mæla fyrir um reglur um málsmeðferð og viðmiðanir varðandi þá undanþágu. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 77/2005 frá 11. júní 2005.
Reglugerð framkvæmdastjórnar (EB) nr. 1851/2006 frá 14. desember 2006 um breytingu á I. viðauka við reglugerð ráðsins (EBE) nr. 2092/91 að því er varðar notkun hefðbundins fóðurs á tímabilum þegar farið er milli bithaga. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 78/2007 frá 7. júlí 2007.
Reglugerð framkvæmdastjórnar (EB) nr. 394/2007 frá 12. apríl 2007 um breytingu á I. viðauka við reglugerð ráðsins (EBE) nr. 2092/91 um lífræna framleiðslu landbúnaðarafurða og merkingar þar að lútandi á landbúnaðarafurðum og matvælum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 104/2007 frá 29. september 2007.
2. gr.
Ofangreindar reglugerðir framkvæmdastjórnarinnar eru birtar sem fylgiskjöl við reglugerð þessa.
3. gr.
4. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 6. gr. laga nr. 162/1994 um lífræna landbúnaðarframleiðslu. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 24. september 2008.
F. h. r.
Sigurgeir Þorgeirsson.
Baldur P. Erlingsson.
Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)