Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti

1163/2008

Reglugerð um togveiðar á kolmunna 2009. - Brottfallin

1. gr.

Reglugerð þessi tekur til flotvörpuveiða íslenskra skipa á kolmunna á samningssvæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC) í fiskveiðilögsögu Íslands og í lögsögum þeirra landa, þar sem íslensk skip hafa rétt til að veiða samkvæmt samn­ingum. Á árinu 2009 er íslenskum skipum heimilt að veiða 95.739 þús. lestir af kolmunna og skal Fiskistofa skipta því heildarmagni milli þeirra á grundvelli afla­hlut­deildar þeirra.

Heimilt er hverju skipi að veiða allt að 10% yfir aflamarki í kolmunna á árinu 2009 og dregst sá umfram afli frá aflamarki þess á árinu 2010. Þá er heimilt að flytja allt að 10% af ónýttu aflamarki fiskiskips frá árinu 2009 til ársins 2010.

2. gr.

Íslenskum fiskiskipum er óheimilt að stunda flotvörpuveiðar á kolmunna skv. 1. gr. án sérstaks leyfis Fiskistofu. Aðeins er þeim íslenskum fiskiskipum heimilt að stunda flot­vörpu­veiðar á kolmunna, sem hafa aflamark í kolmunna.

3. gr.

Óheimilt er að stunda kolmunnaveiðar með flotvörpu vestan 20°30' V og innan línu fyrir Suður- og Austurlandi sem dregin er milli eftirgreindra punkta:

  1. 63°05,90' N - 20°30,00' V
  2. 63°11,40' N - 19°07,30' V
  3. 63°07,50' N - 18°38,00' V
  4. 63°09,00' N - 18°27,00' V
  5. 63°07,00' N - 18°02,00' V
  6. 63°12,50' N - 17°00,00' V
  7. 63°20,00' N - 16°03,00' V
  8. 63°22,50' N - 15°51,00' V
  9. 63°26,00' N - 15°29,00' V
  10. 63°30,70' N - 15°00,00' V
  1. 63°33,60' N - 14°41,70' V
  2. 63°43,40' N - 13°53,00' V
  3. 64°00,00' N - 13°07,00' V
  4. 64°21,70' N - 12°17,30' V
  5. 64°32,30' N - 11°41,00' V
  6. 65°00,00' N - 11°28,00' V
  7. 65°27,00' N - 11°24,00' V
  8. 66°06,00' N - 11°33,00' V
  9. 66°42,00' N - 12°50,00' V

og þaðan í rv. 305° að mörkum fiskveiðilögsögunnar. Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. eru kolmunna­veiðar heimilar innan íslenskrar lögsögu vestan 27°30' V.

4. gr.

Íslenskum skipum sem leyfi hafa fengið til kolmunnaveiða með flotvörpu er skylt að halda afladagbækur um veiðarnar sbr. reglugerð nr. 557/2007, með síðari breytingum, um afladagbækur. Þar skal fram koma m.a. veiðisvæði, veiðitími og afli í hverju togi. Skal Fiskistofu sent afrit af afladagbókunum eigi síðar en 14 dögum eftir hver mánaða­mót eða eftir að veiðum lýkur.

Þegar kolmunni er reiknaður til þorskígilda skal miðað við verðmætastuðulinn 0,06.

5. gr.

Kolmunnasýni skulu tekin úr afla, a.m.k. eitt í hverri veiðiferð og skal skrá sýnatökuna í afladagbók skipsins. Í hverju sýni skulu vera 100-200 stykki af kolmunna sem valin eru af handahófi. Sýnin skulu fryst um borð, rækilega merkt (staður, dagsetning og dýpi) og send Hafrannsóknastofnuninni í Reykjavík eða útibúum stofnunarinnar að lokinni veiði­ferð.

6. gr.

Aðeins er þeim íslenskum fiskiskipum heimilt að stunda kolmunnaveiðar í flotvörpu sem búin eru fjarskiptabúnaði sem sendir upplýsingar með sjálfvirkum hætti til sameiginlegrar eftirlitsstöðvar Landhelgisgæslu Íslands og Fiskistofu, hér eftir nefnd Eftirlitsstöðin, um staðsetningu viðkomandi skips á klukkustundar fresti. Óheimilt er að halda úr höfn til veiða fyrr en starfsmenn Eftirlitsstöðvarinnar hafa staðfest til skipstjóra að ofangreindur búnaður starfi eðlilega.

7. gr.

Um tilkynningar við kolmunnaveiðar á alþjóðlegu hafsvæði gilda ákvæði reglugerðar nr. 321/2008, um veiðieftirlit á samningssvæði (NEAFC) Norðaustur-Atlantshafs­fiskveiði­nefndarinnar og taka þær tilkynningar einnig til veiða innan lögsögunnar sem og veiða í færeyskri lögsögu. Um tilkynningar til Færeyja vegna veiða innan færeysku lögsögunnar fer samkvæmt reglum færeyskra stjórnvalda.

8. gr.

Skipstjóri skal, svo fljótt sem verða má eftir að veiðum lýkur og eigi síðar en 4 klukku­stundum eftir að komið er til hafnar, senda Fiskistofu skýrslu um áætlaðan kolmunnaafla í viðkomandi veiðiferð á því formi sem Fiskistofa ákveður. Í skýrslunni skal koma fram kolmunnaafli skipsins sundurliðaður eftir afla innan fiskveiðilandhelgi Íslands, afla á alþjóðlegu hafsvæði og afla innan fiskveiðilandhelgi Færeyja.

9. gr.

Kolmunnaafla skal landað og hann veginn í íslenskri höfn. Heimilt er þó með leyfi Fiskistofu að landa kolmunnaafla og kolmunnaafurðum í höfnum erlendis enda sé tryggt að eftirlit með vigtun aflans sé fullnægjandi að mati Fiskistofu. Jafnframt er heimilt að fengnu leyfi Fiskistofu að landa óvigtuðum kolmunna um borð í vinnsluskip og flutninga­skip, enda sé tryggt að skráning og vigtun afla sé fullnægjandi að mati Fiskistofu. Sækja skal um leyfi til löndunar kolmunna utan íslenskra hafna til Fiskistofu og skal skipstjóri í umsókn tilgreina nákvæmlega hvar hann hyggst landa aflanum og áætlað magn kolmunna. Þegar að löndun lokinni skal skipstjóri veiðiskips senda Fiskistofu endan­legar tölur um landaðan afla og aflaverðmæti, staðfestar af móttakanda kolmunnans eða stað­fest afrit af vigtarnótu, liggi það fyrir. Um vigtun á kolmunna gilda að öðru leyti ákvæði reglugerðar um vigtun sjávarafla.

10. gr.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum samkvæmt ákvæðum III. kafla laga nr. 151, 27. desember 1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands og ákvæðum laga nr. 116, 10. ágúst 2006, um stjórn fiskveiða.

11. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 151, 27. desember 1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands og ákvæðum laga nr. 116, 10. ágúst 2006, um stjórn fiskveiða, til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 19. desember 2008.

F. h. r.
Steinar Ingi Matthíasson.

Kristján Freyr Helgason.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica