Sjávarútvegsráðuneyti

12/2007

Reglugerð um loðnuveiðar íslenskra skipa á vetrarvertíð 2007. - Brottfallin

1. gr.

Reglugerð þessi tekur til loðnuveiða íslenskra skipa á tímabilinu frá kl. 09.00 þann 12. janúar 2007 til og með 30. apríl 2007.

2. gr.

Aðeins skipum sem hafa aflamark í loðnu er heimilt að stunda loðnuveiðar. Veiðar umfram aflamark í loðnu varða gjaldtöku samkvæmt ákvæðum laga nr. 37/1992, um sérstakt gjald vegna ólöglegs sjávarafla.

Leyfilegur hámarksafli íslenskra loðnuveiðiskipa á loðnuvertíðinni er 143.835 lestir.

3. gr.

Loðnuafla skal landað og hann veginn í íslenskri höfn. Heimilt er þó með leyfi Fiskistofu að landa loðnu til bræðslu og heilfrystri loðnu í höfnum erlendis enda sé tryggt að eftirlit með vigtun aflans sé fullnægjandi að mati Fiskistofu. Jafnframt er heimilt að fengnu leyfi Fiskistofu að landa óvigtaðri loðnu um borð í vinnsluskip og flutningaskip, enda sé tryggt að skráning og vigtun afla sé fullnægjandi að mati Fiskistofu. Sækja skal um leyfi til löndunar loðnu utan íslenskra hafna til Fiskistofu og skal skipstjóri í umsókn tilgreina nákvæmlega hvar hann hyggst landa aflanum og áætlað magn loðnu. Þegar að löndun lokinni skal skipstjóri veiðiskips senda Fiskistofu endanlegar tölur um landaðan afla og aflaverðmæti, staðfestar af móttakanda loðnunnar eða staðfest afrit af vigtarnótu, liggi það fyrir.

Heimilt er að miðla loðnuafla úr nót til skips, í því skyni að koma í veg fyrir að loðnu sé sleppt dauðri úr nótum, enda hafi bæði skipin aflamark í loðnu.

Um vigtun á loðnu gilda að öðru leyti ákvæði reglugerðar nr. 522/1998, um vigtun sjávar­afla, með síðari breytingum.

4. gr.

Frá og með 21. janúar 2007 er aðeins heimilt að stunda loðnuveiðar með flotvörpu innan svæðis sem afmarkast af línum sem dregnar eru milli eftirgreindra punkta:

  1. 67° 11¢ N - 14° 30¢ V
  2. 68° 00¢ N - 14° 30¢ V
  3. 68° 00¢ N - 10° 00¢ V
  4. 65° 15¢ N - 10° 00¢ V
  5. 65° 15¢ N - 11° 20¢ V
  6. 66° 05¢ N - 11° 30¢ V
  7. 66° 15¢ N - 12° 00¢ V
  8. 66° 12¢ N - 12° 22¢ V
  9. 66° 40¢ N - 12° 40¢ V
10. 66° 47¢ N - 13° 00¢ V
11. 66° 52¢ N - 13° 08¢ V
12. 67° 11¢ N - 14° 30¢ V

Ráðuneytið getur takmarkað eða bannað loðnuveiðar á ákveðnum svæðum í tiltekinn tíma þyki ástæða til þess, m.a. vegna verndunarsjónarmiða og til þess að stuðla að sem bestri hagnýtingu loðnustofnsins. Jafnframt getur ráðherra ákveðið að aðeins stundi loðnu­veiðar í tilraunaskyni ákveðinn fjöldi skipa í því skyni að kanna ástand loðnu­stofnsins undir eftirliti Hafrannsóknastofnunarinnar.

Hafrannsóknastofnuninni er heimilt að grípa til skyndilokunar veiðisvæða, sbr. 10. og 11. gr. laga nr. 79/1997 um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, fari hlutfall loðnu, smærri en 14 cm, yfir 20%, miðað við fjölda. Stærð loðnu er mæld frá trjónuoddi að sporðsenda.

5. gr.

Með mál sem rísa út af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti opinberra mála og varða brot viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 116, 10. ágúst 2006, um stjórn fiskveiða og laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.

6. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 116, 10. ágúst 2006, um stjórn fiskveiða og laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, til að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.

Sjávarútvegsráðuneytinu, 11. janúar 2007.

F. h. r.

Jón B. Jónasson.

Guðný Steina Pétursdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica