1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 78/2017 frá 5. maí 2017, öðlast eftirtalin ESB-gerð gildi hér á landi:
Framkvæmdartilskipun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/2109 frá 1. desember 2016 um breytingu á tilskipun ráðsins 66/401/EBE að því er varðar skráningu nýrra tegunda og grasafræðiheiti tegundarinnar Lolium x boucheanum Kunth. Tilskipunin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 31, frá 18. maí 2017, bls. 395.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 20. apríl 2018.
Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Iðunn Guðjónsdóttir.