267/2021
Reglugerð um (38.) breytingu á reglugerð nr. 301/1995 um eftirlit með sáðvöru.
1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í III. kafla, I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli eftirtalinna ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar, öðlast eftirtaldar ESB-gerðir gildi hér á landi:
- Framkvæmdartilskipun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1985 frá 28. nóvember 2019 um breytingu á tilskipunum 2003/90/EB og 2003/91/EB um framkvæmdarráðstafanir með tilliti til 7. gr. tilskipunar ráðsins 2002/53/EB og 7. gr. tilskipunar ráðsins 2002/55/EB, í þeirri röð, að því er varðar þá eiginleika sem athugun skal að lágmarki taka til og lágmarksskilyrði vegna athugana á tilteknum yrkjum nytjaplantna og grænmetistegunda í landbúnaði. Tilskipunin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 186/2020, frá 11. desember 2020. Tilskipunin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 7, 28. janúar 2021, bls. 550.
- Framkvæmdartilskipun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/432 frá 23. mars 2020 um breytingu á tilskipun ráðsins 2002/55/EB að því er varðar skilgreiningu á grænmeti og skrána yfir ættkvíslir og tegundir í b-lið 1. mgr. 2. gr. Tilskipunin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 185/2020, frá 11. desember 2020. Tilskipunin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 7, frá 28. janúar 2021, bls. 545.
2. gr.
Í stað 9. viðauka við reglugerð nr. 301/1995, með síðari breytingum kemur nýr 9. viðauki sem birtur er með reglugerð þessari.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 22/1994, um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, með síðari breytingum.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 8. mars 2021.
Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Iðunn Guðjónsdóttir.
VIÐAUKI
(sjá PDF-skjal)