162/2020
Reglugerð um (5.) breytingu á reglugerð nr. 834/2014 um matvæli sem eru ætluð ungbörnum og smábörnum, matvæli sem eru notuð í sérstökum læknisfræðilegum tilgangi og þyngdarstjórnunarfæði í stað alls annars fæðis.
1. gr.
Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 7. tölul., svohljóðandi:
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/828 frá 14. mars 2019 um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) 2016/127 að því er varðar kröfur varðandi D-vítamín í ungbarnablöndum og kröfur varðandi erúkasýru í ungbarnablöndum og stoðblöndum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 292/2019, frá 13. desember 2019. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 5, frá 30. janúar 2020, bls. 290.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 13. febrúar 2020.
Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.