Prentað þann 14. apríl 2025
984/2014
Reglugerð um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um afnám tæknilegra hindrana í viðskiptum með vín (IV).
1. gr. Gildissvið.
Reglugerð þessi gildir um innflutning og útflutning á víni milli Íslands og annarra ríkja á Evrópska efnahagssvæðinu. Vín sem upprunnið er frá landi utan Evrópska efnahagssvæðisins heyrir ekki undir reglugerðina, samanber bókun 47 við EES-samninginn.
2. gr. Innleiðing reglugerða.
Eftirfarandi reglugerðir Evrópusambandsins um afnám tæknilegra hindrana í viðskiptum með vín skulu gilda á Íslandi með þeirri aðlögun sem fram kemur í viðkomandi ákvörðunum sameiginlegu EES-nefndarinnar:
-
Fylgiskjöl með sendingum vínafurða og skrár sem skal halda fyrir víngeirann:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 314/2012, frá 12. apríl 2012 (sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB, nr. 36/2014, 12. júní 2014, bls. 245), um breytingu á reglugerðum framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 555/2008 og (EB) nr. 436/2009 að því er varðar fylgiskjöl með sendingum vínafurða og skrár sem skal halda fyrir víngeirann, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 112/2014, frá 16. maí 2014, um breytingu á bókun 47 við EES-samninginn um afnám tæknilegra hindrana í viðskiptum með vín.
-
Flokkar vínræktarafurða, vínfræðilegar vinnsluaðferðir og takmarkanir þar að lútandi:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 315/2012, frá 12. apríl 2012 (sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB, nr. 36/2014, 12. júní 2014, bls. 318), um breytingu á reglugerð (EB) nr. 606/2009, um tilteknar, ítarlegar reglur um framkvæmd reglugerðar ráðsins (EB) nr. 479/2008 að því er varðar flokka vínræktarafurða, vínfræðilegar vinnsluaðferðir og takmarkanir þar að lútandi, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 112/2014, frá 16. maí 2014, um breytingu á bókun 47 við EES-samninginn um afnám tæknilegra hindrana í viðskiptum með vín.
3. gr. Gildistaka og lagastoð.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 193. gr. tollalaga nr. 88/2005, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.
Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 23. október 2014.
F. h. r.
Maríanna Jónasdóttir.
Erna Hjaltested.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.