Prentað þann 14. apríl 2025
982/2018
Reglugerð um gildistöku reglugerðar Evrópusambandsins um afnám tæknilegra hindrana í viðskiptum með vín (IX).
1. gr. Gildissvið.
Reglugerð þessi gildir um innflutning og útflutning á víni milli Íslands og annarra ríkja á Evrópska efnahagssvæðinu. Vín sem upprunnið er frá landi utan Evrópska efnahagssvæðisins heyrir ekki undir reglugerðina, samanber bókun 47 við EES-samninginn.
2. gr. Innleiðing reglugerðar.
Eftirfarandi reglugerð Evrópusambandsins um afnám tæknilegra hindrana í viðskiptum með vín skal gilda á Íslandi með þeirri aðlögun sem fram kemur í viðkomandi ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/2281 frá 11. desember 2017 (sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB, nr. 42/2018, 28. júní 2018, bls. 299), um að heimila hækkun marka fyrir auðgun víns sem framleitt er úr þrúgum úr uppskeru ársins 2017 í tilteknum vínræktarhéruðum í Þýskalandi og í öllum vínræktarhéruðum í Danmörku, Hollandi (Niðurlandi) og Svíþjóð, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 122/2018, frá 31. maí 2018, um breytingu á bókun 47 við EES-samninginn um afnám tæknilegra hindrana í viðskiptum með vín.
3. gr. Gildistaka og lagastoð.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 193. gr. tollalaga nr. 88/2005, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.
Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 25. október 2018.
F. h. r.
Maríanna Jónasdóttir.
Steinar Örn Steinarsson.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.