Prentað þann 7. apríl 2025
962/2015
Reglugerð um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um almannatryggingar (réttindi úr lífeyrissjóðum og til barnabóta (V)).
1. gr. Gildistaka reglugerða framkvæmdastjórnar (ESB) nr. 1372/2013 og nr. 1368/2014.
Reglugerðir framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1372/2013 frá 19. desember 2013 og nr. 1368/2014 frá 17. desember 2014 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 883/2004 um samræmingu almannatryggingakerfa og á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 987/2009 sem kveður á um framkvæmd reglugerðar (EB) nr. 883/2004 skulu öðlast gildi hér á landi, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 101/2015 frá 30. apríl 2015 um breytingu á VI. viðauka (félagslegt öryggi) og bókun 37 við EES-samninginn, sbr. einnig 3. gr. laga nr. 2/1993, um Evrópska efnahagssvæðið, með síðari breytingum og bókun 1 við EES-samninginn.
Reglugerðirnar skulu gilda með þeirri aðlögun sem fram kemur í ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar.
2. gr. Efni.
Í reglugerð þessari er mælt fyrir um gildistöku reglugerðanna varðandi þau málefni sem talin eru upp í 2. gr. reglugerðar nr. 443/2012 um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um almannatryggingar og fjármála- og efnahagsráðherra fer með.
Í reglugerð nr. 960/2015 er kveðið á um gildistöku reglugerðanna varðandi þau málefni sem talin er upp í 2. gr. reglugerðar nr. 442/2012 um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um almannatryggingar og félags- og húsnæðismálaráðherra fer með.
Í reglugerð nr. 961/2015 er kveðið á um gildistöku reglugerðanna varðandi þau málefni sem talin er upp í 2. gr. reglugerðar nr. 442/2012 um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um almannatryggingar og heilbrigðisráðherra fer með.
3. gr. Fylgiskjöl.
Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 101/2015 verður birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB. Reglugerð framkvæmdastjórnar (ESB) nr. 1372/2013 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 34 frá 18. júní 2015, bls. 170. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1368/2014 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 46 frá 20. ágúst 2015, bls. 191. Ákvörðunin og gerðirnar eru einnig birtar sem fylgiskjöl með reglugerð félags- og húsnæðismálaráðherra.
4. gr. Gildistaka.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 56. gr. laga nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, og A-lið 68. gr. og 121. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.
Fjármála- og efnahagsráðneytinu, 27. október 2015.
F. h. r.
Lilja Sturludóttir.
Anna V. Ólafsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.