Prentað þann 7. apríl 2025
961/2008
Reglugerð um breyting á reglugerð um héraðslögreglumenn nr. 283/1997.
1. gr.
2. gr. orðast svo:
Lögreglustjóra í öðrum umdæmum en í umdæmum lögreglustjóranna á Akureyri, Akranesi, Selfossi, Suðurnesjum og á höfuðborgarsvæðinu er heimilt að ráða allt að 8 héraðslögreglumenn til starfa í umdæmi sínu, að fengnu samþykki ríkislögreglustjóra.
Lögreglustjórunum á Akureyri, Akranesi og Selfossi er heimilt að ráða allt að 16 héraðslögreglumenn, lögreglustjóranum á Suðurnesjum er heimilt að ráða allt að 40 héraðslögreglumenn og lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu er heimilt að ráða allt að 80 héraðslögreglumenn að fengnu samþykki ríkislögreglustjóra.
2. gr.
5. gr. orðast svo:
Umsækjandi um starf héraðslögreglumanns skal fullnægja eftirtöldum skilyrðum:
- vera íslenskur ríkisborgari, 20-40 ára,
- hafa ekki gerst brotlegur við refsilög; þetta gildir þó ekki ef brot er smávægilegt eða langt um liðið frá því að það var framið,
- vera andlega og líkamlega heilbrigður og standast læknisskoðun trúnaðarlæknis samkvæmt fyrirliggjandi kröfum,
- hafa lokið a.m.k. tveggja ára almennu framhaldsnámi eða öðru sambærilegu námi með fullnægjandi árangri eða starfsþjálfun sem jafna má til slíks náms, hafa gott vald á íslensku og ensku, hafa almenn ökuréttindi til bifreiðaaksturs og vera syndur.
3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 3. mgr. 10. gr. lögreglulaga, nr. 90 13. júní 1996 með áorðnum breytingum, öðlast þegar gildi.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, 16. október 2008.
Björn Bjarnason.
Þórunn J. Hafstein.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.