Prentað þann 8. apríl 2025
944/2013
Reglugerð um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 313/2013 að því er varðar samstæðureikningsskil, sameiginlegt fyrirkomulag og upplýsingagjöf um hagsmuni í öðrum einingum: Aðlögunarleiðbeiningar (breytingar á alþjóðlegum reikningsskilastöðum IFRS 10, 11 og 12).
1. gr.
Eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB), sem vísað er til í lið 10ba í XXII. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 178/2013, frá 4. október 2013, um breytingu á XXII. viðauka (Félagaréttur) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XXII. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 313/2013 frá 4. apríl 2013 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1126/2008 um innleiðingu tiltekinna alþjóðlegra reikningsskilastaðla í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1606/2002 að því er varðar samstæðureikningsskil, sameiginlegt fyrirkomulag og upplýsingagjöf um hagsmuni í öðrum einingum: Aðlögunarleiðbeiningar (breytingar á alþjóðlegum reikningsskilastöðlum IFRS 10, 11 og 12).
2. gr.
Reglugerð framkvæmdastjórnar (ESB) nr. 313/2013 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB nr. 56/2013, 10. október 2013 bls. 645.
Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 178/2013 er birt sem fylgiskjal með reglugerð þessari.
3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 1. mgr. 127. gr. laga nr. 3/2006, um ársreikninga, skal gilda fyrir félög sem skylt er eða nýta sér heimild til að semja ársreikninga sína og samstæðureikninga í samræmi við innleidda alþjóðlega reikningsskilastaðla, öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 23. október 2013.
F. h. iðnaðar- og viðskiptaráðherra,
Valgerður Rún Benediktsdóttir.
Harpa Theodórsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.