Prentað þann 7. apríl 2025
930/2022
Reglugerð um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/2037 um reglur um beitingu á reglugerð 2016/429 að því er varðar undanþágur frá kvöðum um rekstrarleyfi fiskeldisstarfsstöðva og skráningu og varðveislu gagna hjá rekstraraðilum.
1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 91/2022, frá 29. apríl 2022, öðlast eftirtalin ESB-gerð gildi hér á landi:
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/2037 um reglur um beitingu reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/429 að því er varðar undanþágur fyrir rekstraraðila frá þeim skyldum að skrá lagareldisstöðvar og að halda skrár. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 34, frá 25. maí 2022, bls. 40.
Reglugerðin skal gilda með þeim aðlögunum sem fram koma í ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 91/2022.
2. gr.
Ákvæði reglugerðarinnar sem nefnd er í 1. gr. eru einungis innleidd að því marki er varðar dýraheilbrigði í samræmi við I. kafla I. viðauka EES-samningsins.
3. gr.
Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum reglugerðarinnar sé framfylgt í samræmi við lög nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, lög nr. 66/1998, um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr, lög nr. 60/2006, um varnir gegn fisksjúkdómum og lög nr. 71/2008, um fiskeldi.
4. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 54/1990, um innflutning dýra, lögum nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, lögum nr. 60/2006, um varnir gegn fisksjúkdómum og lögum nr. 71/2008, um fiskeldi, öll með síðari breytingum.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Matvælaráðuneytinu, 22. júní 2022.
Svandís Svavarsdóttir.
Emilía Madeleine Heenen.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.