Prentað þann 8. apríl 2025
912/2014
Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 342/2013 um þróun upplýsinga- og fjarskiptatækni til notkunar fyrir skynvædd samgöngukerfi (ITS).
1. gr.
Við 8. gr. reglugerðarinnar bætist eftirfarandi málsgrein:
Með reglugerð þessari öðlast gildi eftirfarandi reglugerðir (ESB) með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans:
- Reglugerð (ESB) nr. 305 frá 2013 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2010/40/ESB að því er varðar samræmda veitingu rekstrarsamhæfðs neyðarnúmers fyrir ökumenn á vegum (e. eCall) innan alls Evrópusambandsins, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 132 frá 2012, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 54 frá 25. september 2014, bls. 506.
- Reglugerð (ESB) nr. 885 frá 2013 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2010/40/ESB að því er varðar veitingu upplýsingaþjónustu um örugg og áreiðanleg bílastæði fyrir vörubifreiðar og atvinnuökutæki innan alls Evrópusambandsins, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 50 frá 2014 birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 23 frá 10. apríl 2014, bls. 1046.
- Reglugerð (ESB) nr. 886 frá 2013 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2010/40/ESB að því er varðar gögn og málsmeðferðarreglur svo veita megi, þar sem því verður við komið, almennar lágmarksupplýsingar sem tengjast umferðaröryggi án endurgjalds fyrir notendur, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 50 frá 2014 birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 23 frá 10. apríl 2014, bls. 467.
2. gr. Gildistaka.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 45. gr. vegalaga nr. 80/2007, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.
Innanríkisráðuneytinu, 15. október 2014.
Hanna Birna Kristjánsdóttir
innanríkisráðherra.
Ragnhildur Hjaltadóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.