Prentað þann 14. apríl 2025
894/2012
Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð nr. 822/2010 um flutning úrgangs á milli landa.
1. gr.
Á eftir e-lið 1. mgr. 7. gr. reglugerðarinnar kemur nýr stafliður (f.) svohljóðandi:
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 413/2010 frá 12. maí 2010 um breytingu á III., IV. og V. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1013/2006 um tilflutning úrgangs til að taka tillit til breytinga sem samþykktar voru með ákvörðun ráðs Efnahags- og framfarastofnunarinnar C(2008) 156, sem vísað er til í tölulið 32c, V. kafla, XX. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 97/2012 frá 30. apríl 2012. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 54 frá 27. september 2012 - 2012/EES/54/46 bls. 498-499.
2. gr. Innleiðing.
Reglugerð þessi er sett til innleiðingar á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 413/2010 frá 12. maí 2010 um breytingu á III., IV. og V. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1013/2006 um tilflutning úrgangs til að taka tillit til breytinga sem samþykktar voru með ákvörðun ráðs Efnahags- og framfarastofnunarinnar C(2008) 156.
3. gr. Gildistaka.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 29. gr. laga nr. 55/2003, um meðhöndlun úrgangs, með síðari breytingum.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 19. október 2012.
F. h. r.
Magnús Jóhannesson.
Sigríður Auður Arnardóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.