Prentað þann 8. apríl 2025
860/2012
Reglugerð um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um almannatryggingar (II).
Efnisyfirlit
1. gr.
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1244/2010 frá 9. desember 2010 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 883/2004 um samræmingu almannatryggingakerfa og á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 987/2009 sem kveður á um framkvæmd reglugerðar (EB) nr. 883/2004 skal öðlast gildi hér á landi, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 18/2012 frá 10. febrúar 2012 um breytingu á VI. viðauka (félagslegt öryggi) og bókun 37 við EES-samninginn, sbr. einnig 3. gr. laga nr. 2/1993, um Evrópska efnahagssvæðið, með síðari breytingum, og bókun 1 við EES-samninginn.
Reglugerðin skal gilda með þeirri aðlögun sem fram kemur í ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar.
2. gr.
Í reglugerð þessari er mælt fyrir um gildistöku reglugerðarinnar varðandi þau málefni sem talin er upp í 2. gr. reglugerðar nr. 442/2012 og velferðarráðuneytið fer með.
Í reglugerð nr. 861/2012 er kveðið á um gildistöku reglugerðarinnar varðandi þau málefni sem talin eru upp í 2. gr. reglugerðar nr. 443/2012 og fjármála- og efnahagsráðuneytið fer með.
3. gr.
Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 18/2012 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB nr. 34, frá 21. júní 2012, bls. 29, og reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1244/2010, sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB, nr. 54 frá 27. september 2012, bls. 230, eru birtar sem fylgiskjöl með reglugerð þessari.
4. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 70. gr. laga um almannatryggingar, nr. 100/2007, með síðari breytingum, 6. mgr. 42. gr. og 64. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, með síðari breytingum, að fenginni umsögn stjórnar Atvinnuleysistryggingasjóðs, 35. gr. laga um fæðingar- og foreldraorlof, nr. 95/2000, með síðari breytingum, og 55. gr., sbr. 3. mgr. 53. gr. laga um sjúkratryggingar, nr. 112/2008, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.
Velferðarráðuneytinu, 5. október 2012.
Guðbjartur Hannesson.
Hanna Sigríður Gunnsteinsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.