Prentað þann 7. apríl 2025
Reglugerð með breytingum síðast breytt 30. júní 2009
764/2008
Reglugerð um sameiningu heilbrigðisstofnana.
1. gr.
Með reglugerð þessari eru eftirtaldar heilbrigðisstofnanir sameinaðar og tekur sameiningin gildi 1. janúar 2009:
- Undir nafninu Heilbrigðisstofnun Vesturlands sameinast eftirtaldar stofnanir frá 1. janúar 2010:
Heilbrigðisstofnunin Akranesi.
St. Franciskusspítali Stykkishólmi.
Heilsugæslustöðin Búðardal.
Heilsugæslustöðin Borgarnesi.
Heilsugæslustöðin Grundarfirði.
Heilsugæslustöðin Ólafsvík.
Heilbrigðisstofnunin Hólmavík.
Heilbrigðisstofnunin Hvammstanga. - Undir nafninu Heilbrigðisstofnun Vestfjarða sameinast eftirtaldar stofnanir:
Heilbrigðisstofnunin Ísafjarðarbæ.
Heilbrigðisstofnunin Bolungarvík. - .
- Undir nafninu Heilbrigðisstofnunin Fjallabyggð sameinast eftirtaldar stofnanir frá 1. janúar 2010:
Heilbrigðisstofnunin Siglufirði.
Heilsugæslustöðin Ólafsfirði.
2. gr.
Ákvæði a- og d-liðar 1. gr. reglugerðarinnar, með síðari breytingum, koma til framkvæmda 1. janúar 2010.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.