1. gr.
5. gr. reglugerðarinnar hljóðar svo:
Af öllum skipum sem leggjast við bryggju eða hafnarbakka skal greiða kr. 2,20 á mælieiningu, skv. 2. gr. fyrir hverja byrjaða 24 tíma sem skipið liggur bundið.
Fiskiskip greiða þetta gjald eigi oftar en 13 sinnum í mánuði.
Heimilt er að taka lesta- og bryggjugjald af fiskiskipum og minni bátum, sem mánaðargjald, kr. 30,00 á mælieiningu, en þó aldrei lægra en kr. 3.215,00 á mánuði. Bátar minni en 20 BT greiði þó aldrei lægra en kr. 2.100,00 á mánuði.
Skip samkvæmt 2. mgr., 4. gr. eru undanþegin bryggjugjaldi.
2. gr.
Reglugerð þessi sem sett er samkvæmt hafnalögum nr. 23/1994 staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi.
Samgönguráðuneytinu, 20. febrúar 1996.
Halldór Blöndal.
Jón Birgir Jónsson.