Prentað þann 7. apríl 2025
720/2008
Reglugerð um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 108/2006.
1. gr.
Eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB), sem vísað er til á eftir lið 10 ba í XXII. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 54/2006, frá 28. apríl 2006, um breytingu á XXII. viðauka (Félagaréttur) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XXII. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 108/2006 frá 11. janúar 2006 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1725/2003 um innleiðingu tiltekinna, alþjóðlegra reikningsskilastaðla í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1606/2002 að því er varðar alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS-staðla) nr. 1, 4, 6 og 7, alþjóðlega reikningsskilastaðla (IAS-staðla) nr. 1, 14, 17, 32, 33 og 39 og túlkun alþjóðlegu túlkunarnefndarinnar um reikningsskil (IFRIC-túlkun) nr. 6.
2. gr.
Reglugerð framkvæmdastjórnar (EB) nr. 108/2006 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB nr. 46/2008, 18. júlí 2008, bls. 137.
Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 54/2006 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB, nr. 34/2006, 29. júní 2006, bls. 16.
3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 1. mgr. 127. gr. laga nr. 3/2006, um ársreikninga, skal gilda fyrir félög sem skylt er eða nýta sér heimild til að semja ársreikninga sína og samstæðureikninga í samræmi við innleidda alþjóðlega reikningsskilastaðla og öðlast þegar gildi.
Fjármálaráðuneytinu, 18. júlí 2008.
F. h. r.
Ingvi Már Pálsson.
Þórður Reynisson.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.